Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
fimmtudagur, mars 27, 2003 Ég hata Aerobic!
Óþolandi þessi þáttur "Í fínu formi" með Ágústu Johnson og co. Stundum þegar ég er í gati í hádeginu, kem ég heim og fæ mér að e-ð að borða. Því miður verður oftast e-ð óhollt fyrir valinu en mér stendur á sama svo lengi sem ég fæ að horfa á Nágranna á meðan. Svo kemur þessi ógeðslega pirrandi þáttur með Ágústu Johnson rétt á eftir Nágrönnum, einhverjar litlar flatbrjósta gellur sem borða örugglega ekki meira en 1 kaloríu á dag hoppandi og öskrandi "Koma svo! Enga leti í dag, hristið þennan hamborgara af ykkur! Það þýðir ekkert að sitja og horfa á"...PIRRANDI!!! Einmitt þegar maður er að sannfæra sjálfan sig að það sem maður hefur verið að borða sé ekkert óhollt koma litlir öskrandi aerobic dvergar og strá salt í sárin, ég hef aldrei gengið svo langt að loksins standa upp og segja "Nei! Ég ætla ekki að vera löt í dag, ég ætla að hrista þennan hamborgara af mér!!", oftast skipti ég um stöð eða fer að gera e-ð annað. Ætli það sé einhver sem fer alltaf heim í hádeginu úr vinnunni eða skólanum og fer að gera þessar æfingar?? Alla vega er þetta ein af leiðinlegustu hreyfingum sem hægt er að stunda, hoppandi upp á einhverjum pöllum og kýla hnefunum út í loftið...ekkert sérlega spennandi. Ég er að spá í að safna undirskrifta lista til að henda þessu leiðindafólki út af skjánum, það er ekki bara fólkið sjálft sem er pirrandi, heldur er það líka tónlistin, þau virðast hafa svona lög eins og spiluð er á Bylgjunni og setja þau á speed...oh óþolandi!!! Ég vona bara að þetta fari að hætta bráðum svo að ég get borðað mína óhollustu og horft á Nágranna án þess að verða fyrir ónæði þessara stretch-buxna fávita!! Þórdís Nadia
miðvikudagur, mars 26, 2003 Svo virðist sem að Binni og Óli hafa fundið kvenkynsútgáfuna af kynlífsfíklinum sem Valur var að tala um daginn. Kíkið á þessa síðu, ansi hress og skemmtileg stelpa sem talar oft um kynlífsathafnir sínar...kannski við ættum bara að koma henni og kynlífsfíklinum saman ;)
þriðjudagur, mars 25, 2003 Ég held að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið og þegar ég fór inn á þessa síðu hjá honum Baldri Verzlingi. Ég er nefnilega með svona hotbar inni á tölvunni og virkar það þannig að ef ég fer kannski inn á tónlistarsíðu þá koma upp linkar inn á aðrar tónlistarsíður sem ég get farið á o.s.frv. En núna í þessu tilfelli þegar ég skoðaði síðuna hans Baldurs þá komu upp linkar eins og USA og Austin...ég var ekki alveg að skilja þetta en hló mikið.
mánudagur, mars 24, 2003 Amina Annabi
Tónlistarkona vikunnar er Amina Annabi. 5. mars árið 1962 fæddist Amina Annabi í Túnis. Móðir hennar er frá Túnis en faðir hennar frá Frakklandi, foreldrar hennar skildu rétt eftir að hún var fædd og ólst Amina upp flest æskuár sín í Túnis. Móðir hennar var þekkt fyrir að vera góð söngkona og frábær lagasmiður, Amina vissi snemma að aldri að hún myndi feta í fótspor móður sinnar. Þegar Amina var 13 ára flutti hún til Frakklands, ekki leið á löngu að hún hóf að læra söng og þótti snemma mjög efnileg. Aðeins 16 ára stofnaði hún hljómsveit ásamt nokkrum vinum sínum, þau spiluðu tónlist sem var í bland við jazz og reggea. Amina var fljót að ná sér upp á toppinn í tónlistarbransanum, í kringum tvítugt starfaði hún við að syngja á Le Palace (einn af vinsælustu klúbbum Parisar á 7. áratugnum), og varð hún þekkt fyrir að syngja einstaklega vel cover-lög með Billie Holiday. Það má eiginlega segja að ferill Aminu hafi byrjað árið 1991 þegar hún fór sem fulltrúi Frakklands í Eurovision. Lagið sem hún tók heitir “Le dernier qui a parlé” og þótti einstaklega fallegt þar sem hún söng á frönsku með arabískum stíl. Dómarar áttu erfitt með að gera upp á milli hennar og fulltrúa Svíþjóðar, og ákváðu að láta þær deila saman fyrsta sæti. En á seinustu stundu var ákveðið að Svíþjóð skildi hljóta fyrsta sæti, ekki kom það skýrt fram hvers vegna þessu var breytt en olli þetta miklum vonbrigðum hjá frönsku þjóðinni meðal annarra í Evrópu. Sjálf man ég eftir því þegar ég sá hana í Eurovision árið ´91, og þó að ég hafi aðeins verið 7 ára þá varð ég mikill aðdáandi hennar á þessum tíma og er það ennþá. Í kringum ´92-´93 þá kom Amina til Íslands til að halda tónleika á Hótel Sögu. Móðir mín og systir höfðu ákveðið að fara á tónleikana og þótti mér sjálfsagt að ég færi með. Kvöldið sem tónleikarnir voru fór ég að hafa mig til, því ég ætlaði sko að vera fín fyrir hana Aminu. Systir mín leit á mig og spurði mig með undrun á svip hvert ég væri að fara ég svaraði henni að ég væri að fara með þeim á tónleikana, systir mín brosti til mín vandræðalega og sagði að ég gæti ekki komið með vegna þess ég væri of ung. Á þessari stundu fannst mér sem að heimurinn væri að hrynja, og grét ég mikið og bað til Guðs um að ég yrði stór svo ég gæti farið á tónleikana. Ég fór líka í heiftarlega fýlu út í mömmu mína og systir, en allt var það gleymt og grafið daginn eftir þegar ég vaknaði og sá nýjasta diskinn með Aminu á náttborðinu mínu, ekki nóg með það heldur hafði hún líka áritað diskinn til mín. Ég varð himinlifandi! Einn af bestu dögum lífs míns. Stuttu eftir að Amina hafði komið heim úr Eurovision var henni boðið í að leika í mynd eftir Claude Lelouch “La belle histoire”, og ári seinna samdi hún tónlistina í mynd Jaune Jacque Beinex. Hefur hún leikið í mörgum fleirum myndum eftir það, vert er að nefna myndina “The Hour of the Pig” og var henni leikstýrt af Englendingnum Leslie Megahey og lék hún á móti spænsku stjörnunni Miguel Bosé. Ég mæli eindregið með því að þið sjáið þá mynd, mjög fyndin. Seinasti geisladiskur sem Amina gaf út heitir “Annabi” og kom hann út árið ´99, fékk ég þann disk á 16 ára afmælinu mínu frá systur minni sá diskur var einnig áritaður. Ekki veit ég hvort að tónlist Aminu höfði til allra en er tónlist hennar flokkuð undir “World Music”, og er eins konar popp-arabísk tónlist sungin á frönsku. Amina er einstaklega hæfileikarík og falleg kona sem hefur oft stutt góð málefni með að halda tónleika um allan heim. Eitt verð ég að nefna að lokum að mér finnst Amina ótrúlega lík Láru systir minni :) Amina Annabi
sunnudagur, mars 23, 2003 Andskotinn!! Ég var búin að skrifa langt blogg um tónlistarmann vikunnar þegar e-ð óhapp gerðist og allt sem ég skrifaði strokaðist út. Þannig að þið verðið að afsaka, ég verð búin með þetta á morgun...Binni ráðlagði mér bara að skrifa allt blogg inn í Word og ég held að ég geri það bara...samt frekar pirruð núna. Var búin að leggja mikla vinnu í að skrifa þetta, var c.a. 2 tíma að klára þetta átti bara eftir að setja inn myndina þegar þegar síðan mín datt út og allt var horfið það sem ég hafði skrifað. En hey svona er lífið ekki alltaf skemmtilegt þegar maður á svona leiðinlegt skrapatól sem er alltaf að bila í öðru hverju! Jæja en þangað til mun ég vera að vinna að nýju bloggi í WORD!!!!
Þórdís Nadia
|