Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, mars 21, 2003 Þið verðið að afsaka...tónlistamanni vikunnar verður seinkað þangað til á morgun, mikið að gera hjá mér þannig ég verð víst bara að vakna snemma á morgun og undirbúa tónlistarmann/konu eða hljómsveit vikunnar.
P.S. ég vil þakka öllum fyrir að skrifa í gestabókina, ekkert skemmtilegra heldur en að heyra hvað síðan mín er skemmtileg og hvað ég er sniðug :) Þórdís Nadia
mánudagur, mars 17, 2003 19. september
Ég á afmæli 19. september. Ég hef eiginlega aldrei verið ánægð með að eiga afmæli þennan mánaðardag, skólinn er nýbyrjaður, kalt úti, næstum því í endaðann á mánuðinum sem þýðir að enginn á pening til að gefa manni almennilega afmælisgjöf ;) svo plús það, hefur mér alltaf fundist þetta vera á hálf ómerkilegur dagur. Hvert skipti sem ég á afmæli kíki ég í sjónvarpsdagskránna og vona að einhver merkismaður eigi sama afmælisdag og ég, en nei alltaf er það eitthvert ómerkilegt fúlegg sem á afmæli sama dag. Ég hef meira að segja reynt að leita á netinu eftir einhverjum merkisatburði sem gerðist þennan dag. Fór t.d. á síðu Led Zeppelins þar sem er hægt að slá inn dagsetningu og sjá hvað hljómsveitin var að bralla eða hvar hún var stödd á þessum tíma. Ég prufaði að slá inn afmælisdaginn minn en niðurstaðan var engin, öll þessi ár sem Led Zeppelin var hljómsveit þá gerðist ekkert 19. september. Ég varð nú frekar spæld, en ákvað samt að halda áfram að leita á netinu, eina sem ég fann var að eitthvað ómerkilegt ljóðskáld hafði samið ljóð á þessum tíma árið 1800. Frekar fúlt er það ekki? En það var örlagaríkur dagur seinasta laugardag þegar ég fór í heimsókn til ömmu. Við borðuðum kökur og töluðu saman. Amma stillir síðan á Discovery Channel og þar var þáttur um mestu jarðskjálfta sögunnar, og þessi þáttur sem við vorum að horfa á fjallaði um jarðskjálftann mikla í Mexico árið 1985. Sýnt var frá mörgum byggingum sem hrundu niður eftir jarðskjálftann, þar á meðal var fæðingarspítali sem hafði hrunið, og gat maður séð nokkra daga/klukkutíma gömul börn sem lágu föst á milli rústanna. Heilt lið að fólki kom sér saman til að reyna að bjarga börnunum, mörg börnin höfðu verið föst marga klukkutíma saman klemmd á milli, og var það mjög erfitt að horfa á. En á endanum náðist að bjarga 22 börnum og eru þau frá og með þessum degi kölluð "Kraftaverkabörnin". Öll eiga þau það sameiginlegt fyrir utan það hafa lifað þessa skelfingu af, að þau eiga öll afmæli 19. september. Þetta var sko merkisstund fyrir mig að loksins fann ég atburð sem hafði átt sér stað 19. september sem hafði einhverja þýðingu og mikla merkingu fyrir fólk annars staðar. Ég lýsi því hér með að ég er stolt af því að eiga afmæli sama dag og þessi "Kraftaverkabörn", og lít núna á þennan dag sem happadag! Lifið Heil!
sunnudagur, mars 16, 2003 Home Sweet Home!!
Loksins, LOKSINS er ég komin heim! Eftir mikið basl og vesen þá er ég komin heim! Ég var að vinna á 22 í nótt, kvöldið byrjaði mjög vel og bara mjög skemmtilegur mórall í loftinu, enginn með stæla og ekkert vesen, við glasabörnin vorum óvenju fljót að ganga frá og allt virtist bara ganga mjög vel. Við vorum búin að ganga frá öllu klukkan 06:45 sem er bara ágætis tími miðað við það að það lokar klukkan 06:00. Jæja þannig að allt starfsfólkið ákvað að setjast aðeins niður og spjalla, fá sér kók og slappa af...gott mál. Við vorum búin að sitja þarna og spjalla í c.a. klukkutíma þegar ég var orðin ansi þreytt og vildi fá að komast heim...en fólkið hélt áfram að spjalla, og ekki gat ég sagt neitt við því. Svo var ég farin að taka eftir því hvað ég var orðin þreytt því að ég einhvern veginn datt alltaf út úr samræðunum og fór að "dagdreyma" um rúmið mitt, ég hrekk við og ákveð að reyna fylgjast með um hvað þau eru að tala um, en skildi ekki upp né niður hvert fólkið var að fara...var það svona drukkið? Þau töluðu og töluðu um Frankenstein (eða það ég hélt) og um hvað hann væri ríkur og væri búin að sitja inni í 9 ár, og ég hugsaði: "Hvað er eiginlega í gangi hérna??", svo þegar ég fór að hlusta betur þá voru þau að tala um Franklin Steiner!, reyndar hafði ég ekki heyrt þetta nafn verið nefnt áður en það meikaði aðeins meira sens heldur en Frankenstein. Ég fór að hugsa aftur um hlýja rúmið mitt og spurði hvort það væri ekki komin tími til að við færum að fara heim (ég átti nefnilega að fá far hjá vinnufélaga mínum), jú, jú við setjumst inn í bílinn og leggjum af stað, við erum varla búin að keyra í 30. sek. þegar Löggan stoppar okkur...flott, frábært, æðislegt!! hugsa ég. Bílstjórinn fer inn í löggubílinn og er þar í einhverja stund, á meðan ákveður Birgir vinnufélagi minn að setja e-ð skemmtilegt á fóninn meðan við bíðum, "okei" hugsa ég, hann er alla vega ekki með neinar áhyggjur þannig að þetta hlýtur allt að vera í fínu lagi...eða...."EKKI SEGJA ALDREI, EKKI ÚTILOKA NEITT".........OOOOOOOJJJJJ hann setti Stjórnina á meðan við vorum að bíða, það gat ekki orðið verra, enda fór ég líka að sjá eyrnatappa í hyllingum!! Nú þegar ég var orðin græn af þreytu og illt í eyrunum af á að hlusta á helvítis vælið í Siggu Beinteins, kemur einn lögreglumaðurinn og rekur okkur út úr bílnum og segir við okkur að bílstjórinn sé próflaus og þau verða að taka hann upp á löggustöð! Ég hélt að ég yrði ekki eldri og ég sem hlustaði á þetta helvítis plebba lag 2 sinnum til einskis (sorry er of þreytt til að muna hvernig þetta er skrifað rétt). Jæja við 3 tökum leigubíl heim, ég frekar pirruð og grumpy en hinir hnátarnir bara eldhressir enda fengu sér 2 bjóra eftir vinnu. Ég bjóst við að ég myndi ekki brosa það sem eftir var að "morgninum" en þegar leigubílstjórinn og hinn vinnufélaginn minn fóru að ræða um hvort að maður þurfi ekki að vera með sterka sál til þess að vera leigubílstjóri...þá sagði leigubílstjórinn (sem var frekar rólegur maður um sextugt) "Jaaá maður þarf nú að vera heldur villtur persónuleiki til þess að höndla þetta"......ha ha ha...ég hef aldrei hlegið eins mikið "villtur persónuleiki", hvað kallar hann nú villt?? Jæja góðir hálsar ég er farin í mitt heittelskaða rúm og mun sofa værum svefni fram á síðdegi á morgun! Góða nótt (morgun)
|