Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, september 20, 2003 Jessörrí Bob...
Mér líður stórfurðulega í dag. Ég vaknaði og tók eftir því að ég hafði stækkað heilmikið og fannst ég vita heilmikið sem ég vissi ekki í gær. Í fyrstu skildi ég ekkert í þessu en svo uppgötvaði ég að lokum að ég átti afmæli í gær og er orðin árinu eldri. Hélt upp á smá teiti fyrir vini og vandamenn, ég held að það hafi nú bara heppnast ansi vel. Mamma gaf mér risa stóran rósavönd með alls konar rósum, 5000 kr. og tvo nuddtíma í kínverskt nudd (mamma þú ert algjört æði!). Selma og Heba gáfu mér tösku (því að taskan sem ég geng alltaf með er orðin svolítið sjúskuð), sokka (því það er komin göt á næstum því alla sokka sem ég á), myndaalbúm (því að ég á engin), nýjan lokk í vörina (þessi var minni heldur en minn, minn er allt of stór) og bók sem heitir "Nadia knows best" og fjallar um stelpu sem er óheppin í ástarmálum (passar vel við mig). Frá Súsönnu fékk ég flottan bol/peysu úr Vera Moda og eyrnalokka. Frá Elvu og Eyrúnu (frænkum mínum) fékk ég hvítvínsflösku, rós og 2 "krullu"-rör. Frá Önnu Stellu fékk ég kertastjaka og Amarula flösku. Ég rosalega þakklát fyrir þessar gjafir, takk æðislega! Svo eftir teitið skelltum við stelpurnar okkur niður á Nasa, þar sem Kristín Ýr vinkona var svo góð að redda okkur öllum á gestalistann fyrir Party-Zone kvöldið...takk Kristín ;) Þar skemmti ég mér vel með Súsönnu, Hebu og Selmu. Kom svo heim og sofnaði með bros á vör. Ég trúi ekki að ég sé að fara að vinna, ömó! Ég nenni því engann veginn og plús það held ég að það verði miðnætursýning í kvöld...darn! En alla vega, ég verð að fara að drífa mig...en áður en ég fer þá ætla ég að deila með ykkur einni pælingu sem ég var að pæla í áðan (svona þynnkupælin) Ef nefið á okkur væri kynfæri, myndum við þá hylja það með einhverju svo engin gæti séð það? Myndum við þá eiga svona nef-brækur? Væri þá til klámmyndir þar sem fólk væri að nudda saman nefjum? Smá pæling... Jæja ég er farin! Sí jú leitör alígeitör! Nadia
fimmtudagur, september 18, 2003 Oh what a waffle-night...dududududu....
Var að koma heim af vöfflukvöldi Aristófanesar. Skemmti mér ágætlega að borða vöfflur, hlusta á ljóðalestur og horfa á gjörning. Ég, Selma og Súsanna spjölluðum líka dálítið við belgíska skiptinemann og er hann nú bara hinn fínasti gaur. Mér brá heldur í brún þegar lögreglan hringdi dyrabjöllunni hjá mér klukkan 5 í dag. Spurði mig alls konar spurningar um hvort að ég hafi orðið vör við eitthvað óvenjulegt í dag í blokkinni. Ég varð ekki vör við neitt, og sagði lögreglukonunni það. Ég spurði hana um hvað þetta snérist þá svaraði hún mér bara að þau væru að leita að manni og ég myndi örugglega sjá e-ð um þetta í fréttunum í kvöld. Já maðurinn sem þau voru sem sagt að leita af var bankaræninginn. Dumm dumm dumm dumm.... Já ekki vill svo betur til en að ég eigi afmæli á morgun...jei! Mun þá aldur minn færast frá 18 yfir í 19. Skemmtilegt er það :) En þangað til býð ég ykkur góða nótt Nadia
mánudagur, september 15, 2003
sunnudagur, september 14, 2003 Krakkar mínir, ég setti nú upp kommentakerfi til þess að þið gætuð skrifað í það...ekki mun það skrifa í sig sjálft...ha.
Ég trúi því varla að hann Brynjar sé sá eini sem skoðar síðuna mín...fuss :( Nadia
I have chupitos I have jamon...
Jæja klukkan er hálf ellefu núna að morgni til og hér sit ég hress og kát eftir hörkudjamm sem ég fór á í gær. Byrjaði heima hjá Súsönnu, þar sátu ég, Selma og Súsanna og fengum okkur í glas meðan við horfðum á einhver Queen myndbönd sem Súsanna átti á spólu. Einnig hlustuðum við á Tom Jones á gamla plötuspilara mömmu hennar, já það er gaman að vera heima hjá Súsönnu. Við hringdum í Binna og skipuðum honum að keyra okkur niður í bæ, þar sem við vorum að fara í afmælisboð hjá bróðir hennar Selmu og vini hans. Við gáfum afmælisbörnunum veiðiderhúfur sem Súsanna keypti í rúmfatalagernum á 99 kr. Það var fín stemmning í þessu partíi, bara svona frekar rólegt. Kannski einum of rólegt fyrir mig því að klukkan 11 ákvað ég að fara heim áður en ég myndi drepast í sófanum, þetta rósavín var aldeilis farið að svífa á mig. Selma var svo góð og bauð mér gistingu á "Hótel Selma og Nonni" það var mjög fínt, mjög góð þjónusta ég fékk t.d. að horfa á Simpson´s meðan ég var að drepast og lánuð náttföt hjá hótelinu, flott náttföt líka Billabong stuttbuxur og Nike bolur. Mér leið samt hálf undarlega þegar ég vaknaði, ég var lengi að hugsa hvernig í andskotanum ég hafi komist inn á þetta fína hótel. Tók strætó klukkan 10 og hér er ég. En út í aðra sálma, þá er ég að verða brjáluð á þessum helvítis pop-up gluggum. Its drævin mí fökkin nöts. Ég held að ég hafi einungis lokað 50 gluggum núna meðan ég var að blogga. Þetta er alveg ómögulegt enda er þessi tölva ekkert nema gallað skrapatól. Núna eru aðeins 5 dagar í afmælið mitt, og vil ég skipa fólkinu sem er að fara í nefndarferðina þá helgi að gjöra svo vel að gefa mér afmælisgjöf á fimmtudeginum...takk fyrir :) Nadia
|