Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
sunnudagur, nóvember 09, 2003 Akkúrat núna á ég að vera að pakka niður hlutum úr herberginu mínu í kassa, ég nenni því engann veginn, ef einhver býður sig fram þá má hann alveg koma til mín í kvöld og pakka fyrir mig.
Já góðir lesendur ég er að flytja í 101, flotta íbúð á Óðinsgötunni. Þetta verður samt frekar furðulegt, fyrsta skipti sem ég bý þá ekki svona stutt frá skólanum. Það verður örugglega frekar erfitt að venja sig á að vakna klukkutíma fyrr heldur en vanalega, en ég býst við því að það sé þess virði. Ég fór á ræðukeppnina seinasta fimmtudag, þetta var svona frekar leiðinleg keppni þar sem var eiginlega engin samkeppni. Hápunktur keppninnar var sennilega að horfa á fundarstjóra FÁ-inga, sem var bara helvíti myndarlegur (vá hvað ég hljóma eins og amma mín) þó að ég naut hins vegar ekki að sjá að hann ætti Burberry´s trefil. Eftir ræðukeppnina fór ég á bjórkvöldið á L.A. café með þá tilhlökkun að fá að hlusta á Selmu og Súsönnu DJ-ast smá, en urðum við fyrir þeim vonbrigðum þegar við mættum að staðinn að þær fengu bara ekki að spila, í staðinn þurftum við að hlusta á einhverja helvítis þvælu sem einhver DJ á L.A. café spilaði...vá ég var gjörsamlega að ærast þarna inni. Ég var að uppgötva það núna að ég er alltaf að blogga um það sama. Bjórkvöld og Idol, vá ég verð að fara að breyta þessu, maður verður bara einhvern veginn svo uppiskroppa með umræðuefni þegar maður lifir mínu lífi. En annars var ég mikið að spá í auglýsingum um daginn, þá sjónvarpsauglýsingum og hvað þær ljúga ógeðslega mikið. Það vissu þetta allir örugglega fyrir en ef maður fer virkilega að spá í það, þá eru þær bara allar viðbjóðslegar asnalegar. Kellogs Special K: Ég sé mjög granna konu í gallabuxna stuttbuxum og klipptu ljótu vesti að borða Special K. Þessi auglýsing er bara hrein og bein lygi! Ég borða Kellogs Special K ekki lít ég svona út! Always drasl: Ég man ekki nákvæmlega hvað þessi dömubindi heita en þau eru þannig gerð að það er bæði hægt að nota þau í G-streng nærbuxur og venjulegar nærbuxur. Auglýsingin sýnir stelpu sem situr í hvítum nærbuxum og heldur á dömubindinu. Hún er að hugsa um að fara horfa á video með Önnu (þá brýtur hún ekki dömubindið) eða fara bíó með Pétri (þá brýtur hún dömubindið sem gefur sterklega til kynna að hún ætli að fara í G-streng nærbuxur ef hún ætlar með Pétri í bíó). Okei vá hvar á ég að byrja! Sko í fyrsta lagi myndi ég aldrei vera í hvítum nærbuxum ef ég væri á túr og halda á dömubindi og hugsa mig um "hmm ætti ég að vera í G-streng eða venjulegum nærbuxum í kvöld" og brjóta dömubindið með. Og í öðru í lagi, afhverju í andskotanum getur stelpan ekki verið í G-streng ef hún ætlar að horfa á video með vinkonu sinni, eða bara í venjulegum nærbuxum með stráknum? Sko ef ég væri hún þá myndi ég ekki treysta á einhverja óþægilega grisju upp í rassgatinu á mér til þess að koma í veg fyrir að blæða myndi útfyrir, og hversu vandræðilegt væri það að vera í bíó með strák og með túrblett á rassgatinu? Danska hrökkbrauðs auglýsingin: Ég man ekki nákvæmlega hvað varan heitir en auglýsingin sýnir konu og mann borða hrökkbrauð í elhúsinu hjá sér, konan er á leiðinni í vinnuna ætlar að keyra í vinnuna en ó nei það er sprungið dekkið á bílnum. Hmm hvað gerir konan? Hún ákveður þá að hjóla í vinnuna...dugleg stelpa. Díses kræst! Ég er orðin ýkt pirruð að hugsa um þessar asnalegu auglýsingar. Alla vega eina sem ég þarf að setja út á þessa auglýsingu er: ég efast um að eitt hrökkbrauð í morgunmatinn kemur í veg fyrir að maður undri sig afhverju það er sprungið dekk á bílnum sínum. Hvað þá vonda skapið sem kemur þegar maður uppgötvar að það er sprungið dekk á bílnum. Og ég efast innilega um að út af einu hrökkbrauði að maður taki það í sátt að þurfa að hjóla í vinnuna...með ljótan hjálm. Takk fyrir Nadia
|