Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, apríl 11, 2003 Ég er Sviss!
Switzerland - A neutral power for as long as most can remember, it has avoided war for several centuries. However, it is still considered highly advanced and a global power. Positives: Judicial. Neutrality. World-Renouned. Powerful without Force. Makes Excellent Watches, Etc. Negatives: Target of Ridicule. Constant Struggle to Avoid Conflict. Target of Criminal Bank Accounts. Which Country of the World are You? brought to you by Quizilla
fimmtudagur, apríl 10, 2003 Halló, halló allir saman!
Jæja nú ætla ég að byrja að gera eitt...kvarta, já því eins og Birta Líf vinkona mín sagði "það er enginn alvöru bloggar nema hann sé bitur maður og kvarti og kveini yfir lífinu og tilverunni", þannig þar sem ég er bitur kona ætla ég að kvarta og kveina yfir lífinu og tilverunni. Sko...hvaða eðlilega manneskja hefur próf á föstudegi fyrir páskafrí, og daginn eftir bjórkvöld?? Engin önnur en Halldís skemmtilega kennslukonan í FB! Óþolandi...í hennar augum á maður að sitja og læra heima ÖLL kvöld og hugsa ekkert annað en um "Tullia puella in culinae est" oooh vá hvað ég er alveg að fara að æla á þessa Latínu, ekki skemmtilegasti áfangi sem ég hef farið í. Eitt enn...hvaða eðlilega manneskja þýðir Bangsímon yfir á Latínu? Puff þetta er nú meira helvítis ruglið! Já ég verð að segja eitt hérna ég var að lesa þetta á síðunni hans Elvars: Ég hef farið nær daglega í sund seinustu vikuna, aðallega hefur Breiðholtslaugin orðið fyrir valinu enda þægileg sundlaug mjög með rólegheitin og þægilega potta. Einu sinni þá var hún lokuð og því neyddist ég til að rölta niður hæðina og fór í Árbæjarlaugina. Það ætla ég ekki að gera aftur á næstunni! Endalaust af krakkaskríl, öskrandi, buslandi og vælandi, hlaupandi um alla laugina með allskonar leiktækja-drasl. Þá kýs ég nú frekar að slappa af í hópi gamals og góðs fólks í Breiðholtinu... Ég verð nú að segja að þetta hljómaði ansi kunnuglega og ég get ekki betur séð en þetta er e-ð sem þær hjá Droplaugu hafa bloggað um einhvern tímann áður, ég er farin að líta á þetta sem ritstuld. Dæmið fyrir ykkur sjálf :Jæja... ég fór í sund í gær! Ég skellti mér í árbæjarlaugina með Einari frænda mínum, ég er búin að komast að því að það er ekki besta sundlaugin í bænum. Í fyrsta lagi var alveg pakkað og því fylgja alltaf mkil læti og í öðru lagi eru svo mikil læti í niðurföllunum, æi þau er í heitapottinum þar sem maður liggur ógeðslega pirrandi. Ef að maður er að tala við einhvern þá byrjar maður að öskra því maður heyrir ekkert í sjálfum sér. Ég sá líka fræga konu í sundi.. Selmu Björnsdóttir, kæru sundáhugamenn ég mæli frekarmeð breiðholtslauginni!! Þar eru enginn læti, bara gamalt fólk að ræða pólitík æi mér finnst það helvíti næs. Já Selma ég verð að viðurkenna það ég er með gott minni því ég sé að þú bloggaðir þetta 13. nóvember árið 2002... Ef þið eigið erfitt að muna ómerkilega hluti og hafið kannski sagt mér frá því, endilega spurjið mig bara ég man ábyggilega eftir því! Þórdís Nadia
þriðjudagur, apríl 08, 2003 "Jesus was a sick man"
Skellti mér á fyrirlestur í dag í hátíðarsalnum með henni Súsönnu, sá bara auglýsingu í matsalnum þar sem fyrirsögnin var "Jesus was a sick man" og ekkert annað var gefið til kynna um hvað fyrirlesturinn fjallaði um. Ég ákvað að svala á forvitninni og kíkja á þetta. Þarna var einhver maður á ferð sem kallði sig Gutterfried Muller ef ég man rétt og var hann frá Þýskalandi. Byrjaði hann fyrirlesturinn á að tala um að Jesú hefði kannski verið geðveikur maður sem taldi sig vera son Guðs, en á hinn bóginn gæti Jesú verið sannur og ef við trúum því ættum við að fylgja orðum hans. Þetta var alla vega eins og hvernig ég skildi hann, ég bjóst við að hann myndi tala aðeins lengur og rökfæra mál sitt með einhverjum kenningum, en nei svo aldeilis ekki...þetta var það eina sem hann hafði að segja og virtist ekki vera neitt point í því. Ég veit að hann hafi kannski viljað að fá okkur til að hugsa aðeins um þetta...en þetta var ekkert til að hugsa um. "Hmmm já Jesú hefði getað verið snarklikkaður, en samt kannski ekki" æji þetta var frekar misheppnaður fyrirlestur að mínu mati og fékk mig ekkert til að hugsa um neitt annað en hvað þetta væri asnalegur fyrirlestur. Ef einhverjir sem voru viðstaddir þarna séu að lesa þetta núna, þá vil ég biðjast velvirðingar á því hvernig ég lét á þessum fyrirlestri, ég var alls ekki að reyna að sýna herra Muller óvirðingu með því að springa úr hlátri í miðjum fyrirlestri...ég var annars hugar þar sem mér fannst þetta vera óáhugaverður fyrirlestur og var þessu alls ekki beint til hans. En ég vil annars segja að mér finnst sem að Hafþór hefði alveg eins getað verið með þennan fyrirlestur í stað fyrir þennan Muller, þar sem Hafþór virtist koma öllu umræðuefninu á yfirborðið. Ég skildi bara ekki einhvern veginn pointið sem þessi gaur var að reyna að koma með fyrr en kannski eftir smá umræðu sem Hafþór kom af stað, og það var því miður e-ð sem ég hef heyrt 150 sinnum og hef kannski ekki mikinn áhuga á að hlusta á þessa daganna. Jæja ef þið hafið einhverju að bæta við í þessu máli endilega gerið það þá bara í gegnum gestabókina. Þórdís Nadia
|