Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, október 03, 2003 Já ég sé að ég hef verið ansi hress í gærkvöldi. Það var ekki eðlilegt hvað það var erfitt að pikka inn á lyklaborðið svona drukkin. En þetta var bara fyndið.
Ég vaknaði klukkan hálf níu í morgun og leið eins og ég hafi verið slegin með hamar í hausinn og hafði ekki fengið vatn að drekka í marga daga. Ég stóð upp fór inn í ísskáp og náði í tóma eins líters Sprite flösku fyllti hana að vatni, þambaði það og fór svo aftur inn í rúm með æluna upp í háls. Ég vaknaði síðan aftur klukkan 11, skildi ekkert í því afhverju ég var með eins líters Sprite flösku fulla af vatni, þar sem inni í eldhúsi eru svona 4 hálfs líters kók flöskur, afhverju notaði ég þær ekki? Ég fór síðan að hugsa afhverju í andskotanum var tóm Sprite flaska inni í ísskáp?? Við hérna á heimilinu drekkum nánast aldrei Sprite og höfum oft vit fyrir því að henda tómum flöskum. Svona getur lífið verið skrítið stundum. Ég fékk hringingu í dag frá Tónskóla Sigursveins. Ég sókti nefnilega um í fyrra hjá þeim að fá Selló-kennslu. Loksins var hringt í mig í dag, konan sem heitir Ásdís hringdi í mig og sagði að allt væri fullt í skólanum og ég kæmist sennilega ekki inn. En þess í stað bauð hún mér þá að koma í einkatíma til sín. Ég var mjög ánægð, en það er kannski einn galli við þetta að ég þarf þá að fara kaupa mér Selló. Því þegar ég var seinast að æfa fékk ég að leigja Selló hjá skólanum en núna er það víst ekki hægt. En dóttir vinkonu hennar mömmu á Selló og kannski að ég fái það bara lánað á meðan ég safna mér fyrir nýju. Ég er ekki búin að gera neitt í dag, bara búin að slæpast um á náttfötunum og hnerra. Það er alveg ótrúlegt hvað ég hnerra mikið, ég held að þetta sé bara ekki eðlilegt. Jæja ég er farin að gera e-ð kannski, ég vona að þið hafið notið þess að lesa þessa ótrúlega spennandi færslu. Nadia
Sucky fucky night!
Jæja í dag var boðið að koma með Selmu og Súsönnu á Breakbeat kvöld á Vídalín. Ég var ekki alveg til í það, hugsaði mig vel og lengi um hvort ég ætti að fara, en ákvað svo að lokum að skella mér. Við byrjuðum heima hjá Súsönnu eins og vanalega, og horfðum á gömul Queen myndbönd, mjög skemmtilegt. Svo tókum við leigubíl niður í bæ á Vídalín. Það var alveg ágætt, mér finnst samt þessi staður vera einum of lítill og allt of lítið súrefi til að haldast e-ð lengi þarna inni. Svo hafði ég fengið þær upplýsingar einhvers staðar að það yrði eftir-partý heima hjá Halla Palla, en fékk síðan staðfest eftir Verzló ballið og Breakbeat að Halli Palli væri dauður og það yrði ekkert úr eftirpartíinu. Ég keypti mér inneign og hún virkaði ekki, en ég fór með Súsönnu inn á kebabhúsið til þess að hlýja okkur aðeins og svo að ég gæti hringt. Fyrst rak gaurinn sem var að vinnna þarna okkur út, en síðan bað hann okkur að koma aftur inn. Hann var er frá Túnis og var e-ð að tjá ig um það, en ég man ekki neitt það sem hann sagði við mig Ég sagði honum aðeins frá hvernig sambandið mitt á milli mín og föður míns væri. Svo ákvaðum ég og Súss loksins að taka leigubíl, lágum í hláturskasti alla leiðina þar sem Súss var með einhverja ljóta veiðiderhúfu. Jæja ég er fari uoo í rúm, ég vil bara nefna það að það er einstaklega erfitt fyrir ölvaða manneskju að skrifa á lyklaborð. Þá vitið þið það ef það skildu vera einhvrjar stafsetningavillur eða málfræðivillur! Ciao krAKKAAAAAAAAAAAAAAAAAR! nADIA
mánudagur, september 29, 2003 Músjí músjí
Ég hef tekið eftir því að margir bloggarar eiga það til að setja kærasta/kærustu efst á vinalistann sinn á blogginu sínu. Ekki nóg með það heldur eiga þau oftast e-ð svona heiti eins og "snúllan mín", "fallegust/astur", "krútt", "ástin mín". Þar sem þetta er víst svona mikið í tísku þá er ég spá í að linka Súsönnu mína heittelskuðu efst á vinalistann, en eins og flestir vita þá er við kærustupar. Ég er að spá í að kalla hana "Litli sæti krulluhaus" eða e-ð svipað...ooh hvað það verður sætt hún mun örugglega tárast þegar hún sér þetta. Súsanna ég elska þig! Ég er farin að halda að tai-buxur séu ekki sniðugar lengur. Mér hefur alltaf fundist þær alveg ótrúlega þægilegar til þess að ganga í, en í dag gerðist svolítið sem gerði það að verkum að mér snérist um hug. Ég var að labba heim úr skólanum, og var að labba upp að Hólabrekkuskóla þar sem kemur smá brekka, sem er eiginlega bara möl. Ég ákvað að spretta upp brekkuna. Ég hljóp af stað og flaug á hausinn, þá hafði önnur löppin mín flækst í annarri buxnaskálminni þar sem þær eru svo víðar. Ég lá í mölinni og leit í kringum mig, en var fljót að standa upp þar sem Heba vinkona mín hafði kennt mér að liggja ekki á jörðinni lengi eftir að maður er búin að detta. Þetta var svolítið fyndið, en ég held og vona að enginn hafi séð þetta. Samt örugglega einhver úr Vesturberginu, alveg týpískt. Jæja ég er farin, vonandi dett ég ekki. Ciao Nadia
Ahh loksins kemur sannleikurinn í ljós
You are a true nature girl! Which Ultimate Beautiful Woman are You? brought to you by Quizilla
sunnudagur, september 28, 2003 Jæja...
Ég ákvað að blogga í dag því mér fannst vera tími til komin að ég gerði nýja færslu. En oft þegar manni langar til þess að blogga, sem sagt að maður hefur tíma til þess og er ekki að gera neitt sérstakt, þá hefur maður bara ekkert að segja. Ég ætla að byrja á því að deila með ykkur hvað ég gerði um helgina. Föstudagur: Ekki neitt, kom heim úr skólanum settist niður og horfði á sjónvarpið til 2 (um nóttina) Laugardagur: Fór út í Gerðuberg og hjálpaði Selmu og pabba hennar á opnunarsýningu hjá listakonunni Koggu. Sunnudagur: Sunnudagurinn er ekki alveg búinn ennþá þannig að ég hef ennþá tíma til þess að gera ekki neitt. Hverju fleiru get ég deilt með ykkur? Ég veit það ekki ég nenni ekki að reyna að blogga lengur þannig að ég er farinn. Adios Amigos! Nadia
|