Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, október 01, 2004 Jamm og jamm og júúú! Vá hvað ég er ekki að fíla þessa bloggsíðu. Öll greinaskil eru í rugli og ég veit ekki hvað. Var að koma heim af bjórkvöldi hjá FB, það var ágætt þó að tónlistin hefði mátt vera í betri kantinum. Maður veit svo sem alltaf hvernig tónlistin er á svona bjórkvöldum en gerir sér þó alltaf vonir um að hún verði betri. En í rauninni er ekkert annað hægt en að slá öllu upp í grín þegar maður er að dansa, t.d. tóku ég, Anna Stella og Óli trylltan dans við e-ð leiðinlegt vangalag, það var dálítið fyndið. Karlpeningurinn á þessu blessaða bjórkvöldi var sennilega jafn aðlaðandi og...hmm viskustykki eða e-ð. Strákar, að dansa við love-gúrú er ekki sexy! Það er ógeðslegt! Alla vega þá langar mig einstaklega mikið að fara læra tangó, en mig vantar dansherra. Ef einhver býður sig fram þá endilega kommentið þið. Já, já ekki hika við það. Ég er eflaust viss um að það verður slegist um að verða dansherra minn... Keypti mér diskinn með Hjálmum í vikunni! Hann er súper mega góður! Adieu... Nadia
miðvikudagur, september 29, 2004 Playstation, playstation, playstatiiiiooon! Ég er alveg í stuði núna til þess að fara á e-ð skemmtilegt leikrit, þó að ég hafi ekki alltaf haft mjög gaman af því að fara í leikhús þá er samt einhver svona fílíngur í mér núna. T.d. fyrirsögnin hérna að ofan er úr lagi sem er í einhverju spennu-barnaleikriti eftir Gunnar Helgason. Ég er ekki svo viss um að mér sjálfri myndi finnast það skemmtilegt, held samt að þetta gæti verið spennandi fyrir litlu krakkana. Alla vega... Ég er búin að stunda Jón Forseta ansi mikið þessa seinust liðnu viku. Aðra eins public affection hef ég bara aldrei séð eins mikið af. Fólk potandi í rassgatið á hvort öðru hægri og vinstri, fannst það frekar fyndið, minnti mig einna helst á e-ð ógeðslegt skólaball sem maður fór á þegar maður var 16 ára, allir blindfullir í sleik á dansgólfinu. En þar sem meirihluti fólksins sem stundar þennan skemmtistað er samkynhneigt, komst ég ekki hjá því að fylgjast með því og spá dálítið í hlutunum. Afhverju er það að menn sem laðast að sínu eigin kyni gerast oft svo kvenlegir í hegðun að þeir minna mann einna helst á 13 ára gelgju. En ef þeir laðast að sínu eigin kyni, afhverju eru þeir svona hrikalega kvenlegir? Heillast þeir ekki af því sem er akkúrat andstæða við konur, en samt eru margir þeirra eins og konur. Sama gildir um lesbíur, þó kannski flest allar lesbíur eru ósköp kvenlegar en kannski ekki afgerandi karlmannlegar í hegðun þá eru samt þarna inn á milli konur sem maður er í rauninni ekki viss um hvort hún sé kona. Aah smá pæling... Já ég fór í söguprófið í dag. Djöfulsins helvíti mér gekk ekkert vel, ég verð heppin ef ég fæ 3 á þessi blessaða prófi. Las samt vel undir það og eftir próflesturinn var ég farin að skilja kalda stríðið ansi vel og fannst þetta ekki vera neitt mál. En nei, ég fór næstum því að grenja í prófinu það var kannski ein spurning sem ég gat svarað 100%. Fúlt... America´s Next Topmodel í kvöld, bjórkvöld á morgun, Idol á föstudaginn ég gæti ekki verið hamingjusamari. Nadia
sunnudagur, september 26, 2004 You are like Tiny. You are short tempered but you are quick to adapt to new situations. You like to be the center of attentinon and you know you have every potential to be there. Which Quarashi member are you? (easy) brought to you by
Vúhú!
Ja hérna hér. Fór á útgáfutónleika með Hjálmum í gærkvöldi á Grandrokk, held bara að ég sé ennþá í vímu eftir þessa stórkostlegu tónleika. Þeir spiluðu alveg í 2 tíma eða e-ð, og voru mjög þéttir, sem mér finnst svo fyndið þar sem þeir halda mjög sjaldan tónleika. En þetta voru fyrstu tónleikarnir mínir með þeim því ég missi alltaf rétt af þeim. En ég var svolítið svekkt því þeir voru að selja diskinn sinn þarna og ég hafði gleymt veskinu mínu hjá vini hans Hemma, þannig ég gat ekki keypt diskinn. Fúlt, en ég fjárfesti í honum bara seinna. Ég er að horfa á Extreme Makeover núna. Og ég verð bara að segja, djöfull er fólk geðveikt. Ég hef ekki séð eina óeðlilega ljóta manneskju í þessum þáttum, þetta er oftast bara mjög eðlilegt fólk sem er bara byrjað að eldast og líkaminn og andlitið í samræmi við það. Þetta er nú meira bullið. Og já Súsanna ég sá Jesú (Jesús/Jesúm) á tónleikunum í gær, hann er ansi hot en ég held samt að hann sé bara player, ekki alveg að fíla það. Later people... Nadia
|