Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, október 08, 2004 Hmmm...
Jæja ég er farin á vinnumarkaðinn aftur. Ekki það að ég sé að hætta í skóla, er bara að fara að vinna með skólanum þar sem ég er núna eins og fátæk kirkjurotta. Sótti um vinnu á 22, var að vinna þar áður einhvern tíman sem glasabarn, en núna verð ég á barnum. Ég er að fara í einhvers konar prufu í kvöld og kvíðir mér dálítið fyrir, en þar sem Heba vinkona mín er að vinna þarna, býst ég við því að hún verði mér til halds og trausts í kvöld. Annars var ég að uppgötva amerískan bloggara, www.pickyeater.blogspot.com, ótrúlega fyndin og kaldhæðin gella endilega kíkið á þetta. Já og ég fékk miðannamatið í dag, var frekar sátt sko. Það var A í ensku, A í öðrum ensku-áfanga, A í íslensku, A í íþróttum, A í spænsku, B í sálfræði, C í sögu og E í stærðfræði...hehemm. Annars ætla ég að taka mig á í þessum tveimur seinustu áföngum og kannski öllu hinu líka. Þessi skóli er samt e-ð svo skondinn, hann er svo stór og það er svo mikið af nemendum að það er eiginlega öllum alveg skítsama um þig. Nema kannski Þorvaldur ensku kennari, hann er voða indæll og hefur alltaf trú manni og flest öllum. Ég elska þannig kennara, sem veita manni innblástur og hafa fulla trú á því að maður nái. En já ekki eru allir eins. Jæja ég ætla að fara drífa mig í sturtu og hafa mig til fyrir my new jobah. See ya Nadia
miðvikudagur, október 06, 2004 Anda chica, cierra la boca por favor!
Jæja já, afhverju er ég alltaf að fá einhver dularfull sms. Kannski ekki alltaf en ég held að bara á þessu ári hafi ég fengið óvenju mikið af þeim, fékk t.d. í þessu að einhver Atli er að fara halda tónleika á 11 í kvöld. Man nú ekki eftir neinum Atla sem ég þekki, sem heldur tónleika alla vega. Þessi bloggsíða er dálítið feminstalag með þessa kvenkyns fígúru þarna í horninu. Kannski er ég bara e-ð að rugla, hef nefnilega séð svipaða fígúru og ruslatunnu og við stendur "feminist free". Veit ekki afhverju mér finnst þessi fígúra minna mig á e-ð feministalegt, it just does. Jæja ég er ekki farin á deit ennþá, hef reyndar verið að spá í því, og hef komist endanlega að þeirri niðurstöðu að ég nenni ekki á deit. Jú ég nenni kannski alveg, bara nenni ekki að vera að leita af einhverjum til þess að fara á deit með, það er jú bara leiðinlegt og kannski örlítið örvæntingafullt. Annars fer Selurinn að koma heim næsta þriðjudag, það verður stuð. Skrítið að fá hana heim for good, en skemmtilegt engu að síður. Það er allt að verða brjálað í skólanum út af þessari blessuðu nefndarferð. Hægt er að skoða myndir úr ferðinni á www.nfb.is, aðra eins suddalega ferð hef ég bara ekki heyrt um. Jæja, bæbæ Nadia
mánudagur, október 04, 2004 The Dating Process has begun! Já hér og með er ég að tilkynna ykkur að ég er tilbúin. Tilbúin að takast á við það að standa í óvissunni og fara í bíóferðir og á kaffihús, með öðrum orðum má kalla það ég sé tilbúin að fara á stefnumót, rendezvous, date. Ég er búin að undibúa mig undir þetta í langan tíma, og já ég er tilbúin. Nú er bara spurning, hver vill fara með mér á stefnumót? Það væri í raunninni fínt ef maður gæti bara farið á date með sjálfum sér. Þá væri maður alltaf viss um hvar maður hefði sjálfan sig og verið sammála um flest allt. Engir asnalegir kækir færu í taugarnar á manni því að maður væri svo vanur þeim að maður myndi ekki einu sinni taka eftir því. Svo ef að deitin þróast í samband, þá væri þetta hið fullkomna samband. Maður gæti alltaf stundað kynlíf þegar manni sjálfum langaði til, farið á mynd sem manni sjálfum langaði til að sjá, slökkt á sjónvarpinu þegar það væri fótbolti, horft á sápuóperur án þess að einhver færi að kvarta og talað saman án þess að þurfa að opna munninn. Og alltaf gæti maður talað um sjálfan sig, daginn út og inn! Þetta væri fullkomið... Fullkomið kannski, en ótrúlega leiðinlegt. Ég veit ekki um neitt leiðinlegra heldur en þegar fólk er alltaf sammála öllu sem að maður segir og vill alltaf gera allt sem maður sjálfur vill gera. Það væri bara einum of einfalt fyrir mig. Plús það þá held ég að ég gæti ekki orðið hrifin af sjálfri mér, ég elska mig en ekki þannig að ég gæti orðið ástfangin af mér. Samt eru date bara fyndin eiginlega, þau eru svo spennandi því að maður er svo oft óviss hvar maður stendur. Svo má maður ekki segja hitt og þetta því þá gæti maður litið illa út. Í rauninni að vera deita einhvern getur valdið afskaplegri mikilli vanlíðan, ef manneskjan er ekki búin að tala við mann í nokkra daga þá eru eftirfarandi einkenni mjög líkleg til þess að hrjá mann: Einbeitingarskortur Höfnunartilfinning Fáránlegar ranghugmyndir Afneitun O.s.frv. Líka oft á tíðum meðan maður er að deita, þá virðist sem að hjartað manns taki kipp í hvert skipti sem maður heyrir "dudu, dudu" eða sms-hljóðið mikla. Og berst hjartað manns ótt meðan maður bíður eftir því að opna sms-ið. En já ég vil taka það fram að þessi bloggfærsla er ekki byggð á minni eigin reynslu, heldur vina og vandamanna sem ég hef horft á ganga í gegnum dating-processið mikla. Takk fyrir
sunnudagur, október 03, 2004 Ég er ekki sátt...
Andskotinn hafi það, ég er að reyna að horfa á Granna hérna en sjónvarpið er alltaf að detta út, loftnetið er bilað eða e-ð. Er ég dauð eða e-ð? Afhverju svarar mér enginn þegar ég reyni að hringja, ég er búin að reyna að hringja í 3 manneskjur og enginn svarar, og senda 3 sms. Oh... Verða að fara það er e-ð að Steph! Nadia
|