Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, júní 11, 2004 Brunarúst og óvæntur glaðningur...
Sól sól skín á mig, ský ský burt með þig. Já ég er frekar mikið sólbrennd þessa stundina, en ég er ekki að kvarta, frekar ánægð með þetta ástand eins og er. Það var æðislegur dagur í dag, mikið um glens og gaman í vinnunni og ég held að ég hafi bara ekki hlegið svona mikið í mörg ár, enda var ég komin með mikinn hausverk eftir daginn. Ég fór á 22 í kvöld og hitti þar Hebu og Margó, það voru einhverjir tónleikar í gangi. Nokkrir starfsmenn voru að spila, og voru þeir bara nokkuð hæfileikaríkir. Maður að nafni Rúnar sem er kokkur á 22, tók nokkur lög. Þetta var bara yndislega fallegt hjá manninum er hann með mjög fallega rödd sem minnir dálítið á Cat Stevens og kannski líka Robert Plant, góð blanda þar á ferð. Ég hafði síðan mælt mér mót við Magga á Kaffibarnum en rakst síðan á hann þegar við vorum á leiðinni út, ætluðum að fara aftur á Kaffibarinn en þurftum að fara skyndilega þar sem greyið pabbi hennar Hebu varð að fara á slysó út af hendinni á sér (hann lenti í bílslysi fyrir nokkrum mánuðum). Greyið maðurinn var að sálast úr kvölum þarna inni og var heldur löng bið eftir lækni þar sem það var bara einn læknir á vakt. En meðan ég beið með þeim feðginunum þá fékk ég símhringinginu frá henni Selmu minni, var hún búin að spjalla við mig í smástund þar til að hún færir mér þá fréttir að hún sé á landinu. Þannig ég fór af bráðamóttökunni upp í Breiðholt til þess að hitta hana. En æðislegt að sjá hana, hún er alltaf svo yndisleg og fyndin. Þannig að kvöldið í kvöld var frekar skrítið, sorglegt og óvænt. Skrítin stemmning í mér. Ég elska ykkur öll... Nadia
fimmtudagur, júní 10, 2004 Good day to you sir!
Aaah hvað segir fólkið?? Hvernig er stemmarinn?? Neeih okei ég er hætt, ætla ekki að fara taka hnakka-blogg núna. Það er nú meiri blíðan úti, var að vinna í 10 tíma úti í sólinni, fór síðan beint niður á Austurvöll og sat þar í nokkra tíma. Núna er ég sólbrunnin og sæt, annað en aðrir þá verð ég virkilega sæt þegar ég er sólbrunnin. Ég er búin að ákveða að slappa af um helgina, ég ætla að lesa góðar bækur og leigja video eða e-ð. Jæja sjáum til hversu lengi þetta loforð endist. Ég verð að lýsa óánægju minni yfir þættinum "Hjartsláttur" (í strætó?), venjulega hafa þessir þættir verið heldur leiðinlegir, en vá gátu þeir ekki fengið aðeins leiðinlegra fólk til þess að stjórna þessum þætti. Þau eru svo þurr og leiðinleg, reyndar er eins og þau hafi verið tekin beint út úr Tvíhöfða, leiðinlega fólkið með leiðinlegu áhugamálin. Ekki það að gelgjurnar Maríkó og einhver glyðra sem voru með þennan þátt hafi verið skemmtilegar þá gat maður alla vega gert grín af þeim og hlegið af því hvað þær voru asnalegar, en núna er þetta hreint og beint leiðinlegt. Já leiðinlegt segi ég! Myndir sem mig langar að sjá núna eru: Muriels Wedding Hot Shots Texas Chainsaw Massacre My Girl Yamakasi Amelié Amores Perros Hable con Ella The 6th sense Butterflies Ronja Ræningjadóttir The Rascals (eða Little Rascals, man ekki alveg hvað hún heitir.) Daddy Daycare og einhverjar fleiri sem ég man ekki... Ég er samt búin að sjá allar þessar myndir, langar bara að horfa á þær aftur. Skemmtilegt þetta! Nadia
sunnudagur, júní 06, 2004 Hæ, hæ...
Vá geggt gott veður marr, geggt sól og læti. Alveg milljón fólk úti. Ég og Súsanna dúllurass fórum á Austurvöll, vá geggt gaman. Láum í sólinni eins og algjörir spassar hehehehe....;). Ó mæ god ég sá alveg geggt mikið af sætum strákum úti í dag, hihi ég er svo mikill höstler. Sem minnir mig á það, ég er að fara í vax og fá mér akrýl-neglur í vikunni, váh geggt gella! Svo verð ég geggjað sæt fyrir næstu helgi, er að fara á árshátíð í vinnunni, hlakka geggt til...:) Peter André bara með come-back, æji ýkt glataður gaur hihi. Hann er samt doldið sætur...;) Ég ætla bara vera heima í kvöld og kúra með sætalíusnum mínum og horfa á Friends, shit hvað seinast þátturinn var geggjaður, æji þau eru svo mikil krútt, ógesslega leiðinlegt að þessir þættir séu hættir. Ég elska Friends... Sæbbi hennar Súsönnu er að koma heim á morgun, geggt tilhlökkun í stelpunni, þau eru geggt sæt saman....ficce ficce. Hihi æji það er svo gaman að vera í sambandi, ég elska sambönd! Þau er svo geggt gefandi og bara geggt æðisleg, manni líður alltaf svo vel...hihihihihihihihihi ;););) Hey veit eitthver hvort að það sé uppselt á Pink, mig langar geggt að fara!!! Plís látið mig vita...þá eru þið bestust! Elska ykkur öll, put a smile on your face and make the world a better place hihi ;) Nadia
Hæ, hæ...

|