Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, júlí 24, 2004 Díddídúdídúdabbdabbdeeeeiii.....
Sunnudags-fílíngur í mér núna, samt er það laugardagur. Klukkan er tíu mínutur yfir sex og ég hef ekki stigið út fyrir hússins dyr að sökum mikillar þynnku. Það var smá staffadjamm í gær, hittumst við nokkrar úr vinnunni heima hjá mér ásamt gómsætra veitinga og áfengis. 7 af 8 mættu, 4 af 7 fóru niður í bæ. Frekar fyndið og skrítið kvöld og heldur dimmt. Ég eyddi síðdeginum í svefn, vaknaði og horfði á viðtal við Britney Spears. Eyddi síðan restinni af deginum að grenja yfir Oprah. Svo í kvöld mun ég snæða gómsætan kvöldverð á Rossopomodoro (sem þýðir víst Rauður Tómatur) ásamt Stellu og einhverju öðru fólki. Þar til næst... Nadia
fimmtudagur, júlí 22, 2004 Já ég heyrði hérna lag um daginn sem ég hef ekki heyrt í mjög langan tíma. Það heitir Self Esteem með Offspring. Ég hlustaði oft á það þegar ég var u.þ.b. 10 ára gömul, pældi ekki mikið í textanum fyrr en ég heyrði hann hérna um daginn. Ákvað að birta hann hérna í tilefni þess.
Self Esteem I wrote her off for the tenth time today And practiced all the things I would say But she came overI lost my nerve I took her back and made her dessert Now I know I'm being used That's okay cause I've got no self esteem We make plans to go out at night I wait till 2 then I turn out the light All this rejection's got me so low If she keeps it up I just might tell her so When she's saying that she wants only me Then I wonder why she sleeps with my friends When she's saying that I'm like a disease Then I wonder how much more I can spend Well I guess I should stick up for myself But I really think it's better this way The more you suffer The more it shows you really care Right? Now I'll relate this a little bit That happens more than I'd like to admit Late at night she knocks on my door Drunk again and looking to score Now I know I should say no But that's kind of hard when she's ready to go I may be dumbBut I'm not a dweeb I'm just a sucker with no self esteem
miðvikudagur, júlí 21, 2004 Hæ...
Sá fugl klessa á rúðu í dag. Hann dó, fékk dauðakippi, ég halda hann lifandi, hann bara dauður. Ég skoða mynd af mér í dag, ekki góð mynd, vond mynd. Í dag var mikið mikið heitt. Svo rignaði bara... Nadia
mánudagur, júlí 19, 2004 Girl Talk Ég sit núna í stofunni að horfa á Matglaða Spæjarann (minnir mig að hann sé kallaður á íslensku) og hlusta á mömmu flissa í símann eins og lítil skólastúlka. Vinkona hennar er víst komin á séns. Fór í skírnina til Fanneyjar áðan, sá Ísak Frey litla. Ótrúlega sætur dúllurass og tekur Fanney sig bara ótrúlega vel í þessu móðurhlutverki. Ég er eiginlega farin að sakna sjálfrar mín núna, ég veit ekki hver ég er lengur. Geðsjúklingur er sennilega orðið sem myndi lýsa mér best. Eftir gærkvöldið hef ég ákveðið að minnka niður úr áfengisneyslu og partýstandi, ég er farin að hafa áhyggjur af geðheilsu minnu. En ég er ekki að koma með yfirlýsingu yfir því að ég ætli að hætta að drekka eða djamma, því oft sem að ég segi e-ð svoleiðis þá hef ég ekki staðið við það. Þannig ég tek bara einn dag í einu, ætla að reyna ná því takmarki aftur að vera yfirveguð, mér hefur ekki tekist það hingað til, en vonandi bráðlega. Ég er samt að spá í einu, finnst ykkur leiðinlegt þegar ég er að skrifa um e-ð svona tilfinningarugl og leit að sjálfri mér, því ég er augljóslega ekki bara að blogga fyrir sjálfan mig. Ætli þetta sé ekki einhvers konar athyglissýkilegt kick sem maður fær, veit að allir eru að lesa þetta. En oft á tíðum hefur bloggið mitt verið ansi persónulegt. Tjáið ykkur um það endilega. Já og ég rétt vona að það hafi ekki verið margir eða sama sem enginn lesið seinustu færslu sem ég strokaði síðan út. Ég las samt yfir hana aftur, fannst hún frekar fyndin. Frekar ólíkt mér að gera e-ð svona spontant. Annars var þessi færsla aðalega mestu leiti byggð á sjálfsvorkunn, þynnku og asnalegu tilfinningaflóði. Eru kannski mörk fyrir því hvað fólk vill vita um persónuleg málefni annara, eða er ég kannski ein um það að vera svona forvitin um aðra. Annars fór ég í mjög svo skemmtilega ferð áðan. Óli er nefnilega núna um helgina að vinna sem næturvörður í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum. Kíktum við áðan. Fengum við að standa aftan á golfbíl, kíkja á Guttorm og önnur dýr, sjá lítinn sætan kóp og prufa gömlu hossuhjólin. Ótrúlega gaman, sé reyndar eftir því að hafa ekki farið á trampólínið. En annars er ég að fara að mæta á sama stað eftir 6 tíma...vúúúh! Nadia
sunnudagur, júlí 18, 2004 Biðst velvirðingar á seinustu færslu sem ég er búin að stroka út núna. Smá stundarbrjálæði sem greip yfir mig.
|