Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, maí 15, 2004 Eilítið hífuð...
Hélt af stað í gærkvöldi í sumarbústað á Laugarvatni. Þar hittist allur vinahópurinn í tilefni þess að Gunnar Óli ætti afmæli og auk þess voru krakkarnir búnir í prófum. Ekki var mikið um kynsvall eins og vanalega, en þó e-ð. Gunnar Óli fékk glæsilega partý-gyltu í afmælisgjöf frá Abbý og Óla. Reyndist gyltan okkur vel í heita pottinum þar sem hún flaut með fullnægingarsvip framan í sér. Gyltan var með gat aftan frá, sem átti sennilega að nota til eins konar sjálfsfróunar (eða ekki sjálfsfróun). Binni var alveg gasalega spenntur fyrir þessari gyltu, tók hann e-ð sveppadressing og og smurði því um fingur sína (var reyndar með smokk fyrir) og tróð svo hressilega í afturenda gyltunnar. Strákunum fannst ægilega fyndið að hella bjór yfir hvorn annan og var engin tillitssemi tekin til þess að það var engin klór í vatninu. Þannig að hár okkar allra var mjög skrítið þegar við vöknuðum. Í þessari ferð komst ég að mörgu, e-ð kynferðislegt sem tengdist vina mína og mig. Eða kannski kynhneigð. Lagið "She wants to move" með N.E.R.D. var á repeat allt kvöldið, einstaklega skemmtilegur taktur í laginu til þess að dansa við. Ég og Binni ákváðum að leika myndbandið, átti ég að vera gellan í myndbandinu og Binni hljómborðsleikarinn. Þetta var ægilega skemmtilegt og tókst þetta allt saman vel. Flest allir vöknuðu klukkan hálf átta í morgun við það að Óli og Abbý voru að skella hurðinni á eftir sér. Mér tókst ekki að sofna aftur vegna þynnku. Lenti á spjalli heillengi við Svanhvíti. Um hádegið ákváðum við að það væri tími til komin að taka til. Og það var ekki skemmtilegt. En svo gerðist dálítið óvænt. Shanon, fyrrverandi "kærastinn" minn frá Namibíu, hringdi í mig. Ég hef ekki talað við þennan strák í 4 ár, og allt í einu tók hann upp á því að hringja í mig. Hann sagði mér þær fréttir að hann væri að fara að flytja til Englands, hann spurði hvort að ég væri ekki til í að hitta hann þar einhvern tíman. Hann er nú meira fíflið, og hann er líka með hommalega rödd. Skil ekki alveg hvað ég var að spá þegar ég var með honum. Ég ákvað að drekka seinasta bjórinn minn á leiðinni heim. Við stoppuðum við í Smáralindinni, þar sem nokkrir meðlimir Írafárs voru að árita. Þar á meðal Birgitta Haukdal. Fékk ég 3 eiginhandaáritanir. Og það á kassakvittun þar sem ég átti ekkert annað. En ég mun varðveita þetta vel. Komum við svo við í Vínbúðinni, þar sem ég keypti mér annan bjór. Ég komst að merkilegri uppgötvun á leiðinni heim í bílnum. Ég er reyndar dálítið hífuð núna í augnablikinu, en ég efast um að ég fari að ræða það hér. Eða jú kannski. Nei ég veit ekki. Nei ég sleppi því þar sem þetta getur verið viðkvæmt umræðuefni fyrir suma. Nadia P.S. gleymdi að segja frá því að það var strákur á Laugarvatni sem prumpaði á Önnu Stellu.
Eilítið hífuð...
Hélt af stað í gærkvöldi í sumarbústað á Laugarvatni. Þar hittist allur vinahópurinn í tilefni þess að Gunnar Óli ætti afmæli og auk þess voru krakkarnir búnir í prófum. Ekki var mikið um kynsvall eins og vanalega, en þó e-ð. Gunnar Óli fékk glæsilega partý-gyltu í afmælisgjöf frá Abbý og Óla. Reyndist gyltan okkur vel í heita pottinum þar sem hún flaut með fullnægingarsvip framan í sér. Gyltan var með gat aftan frá, sem átti sennilega að nota til eins konar sjálfsfróunar (eða ekki sjálfsfróun). Binni var alveg gasalega spenntur fyrir þessari gyltu, tók hann e-ð sveppadressing og og smurði því um fingur sína (var reyndar með smokk fyrir) og tróð svo hressilega í afturenda gyltunnar. Strákunum fannst ægilega fyndið að hella bjór yfir hvorn annan og var engin tillitssemi tekin til þess að það var engin klór í vatninu. Þannig að hár okkar allra var mjög skrítið þegar við vöknuðum. Í þessari ferð komst ég að mörgu, e-ð kynferðislegt sem tengdist vina mína og mig. Eða kannski kynhneigð. Lagið "She wants to move" með N.E.R.D. var á repeat allt kvöldið, einstaklega skemmtilegur taktur í laginu til þess að dansa við. Ég og Binni ákváðum að leika myndbandið, átti ég að vera gellan í myndbandinu og Binni hljómborðsleikarinn. Þetta var ægilega skemmtilegt og tókst þetta allt saman vel. Flest allir vöknuðu klukkan hálf átta í morgun við það að Óli og Abbý voru að skella hurðinni á eftir sér. Mér tókst ekki að sofna aftur vegna þynnku. Lenti á spjalli heillengi við Svanhvíti. Um hádegið ákváðum við að það væri tími til komin að taka til. Og það var ekki skemmtilegt. Ég ákvað að drekka seinasta bjórinn minn á leiðinni heim. Við stoppuðum við í Smáralindinni, þar sem nokkrir meðlimir Írafárs voru að árita. Þar á meðal Birgitta Haukdal. Fékk ég 3 eiginhandaáritanir. Og það á kassakvittun þar sem ég átti ekkert annað. En ég mun varðveita þetta vel. Komum við svo við í Vínbúðinni, þar sem ég keypti mér annan bjór. Ég komst að merkilegri uppgötvun á leiðinni heim í bílnum. Ég er reyndar dálítið hífuð núna í augnablikinu, en ég efast um að ég fari að ræða það hér. Eða jú kannski. Nei ég veit ekki. Nei ég sleppi því þar sem þetta getur verið viðkvæmt umræðuefni fyrir suma. Nadia P.S. gleymdi að segja frá því að það var strákur á Laugarvatni sem prumpaði á Önnu Stellu.
fimmtudagur, maí 13, 2004 I try to stay away from evil deeds but succumb to temptation every once in a while. I'm not quite on my way to hell but I certainly have some explaining to do. Are you evil? find out at Hilowitz.com
miðvikudagur, maí 12, 2004 Heil og sæl...
Matarklúbbur í kvöld. Þetta verður spennandi, þar sem ég kann ekki rass að elda. En ég keypti lax og brauð, þannig þetta ætti nú að reddast. Já ég stefni á annan skokk-túr í kvöld, annars er svo ógeðslega hvasst úti, veit ekki hvort ég nenni því. Við sjáum til. Helgin verður vonandi skemmtileg, þar sem það er sumarbústaðarferð á föstudag. Svo fer ég í afmæli til Hebu á laugardaginn, svo nátturlega Eurovision. Já ég ætla að djamma um helgina svona til tilbreytingar. Úff já já já... Nadia
þriðjudagur, maí 11, 2004 Hey...
Ég varð að blogga einu sinni enn. Ég verð að tjá mig um nýja lagið með Britney. Ég táraðist þegar ég sá myndbandið, ég held að þessi stelpa sé bara á góðri leið. Alla vega er ég byrjuð að fíla hana frekar mikið þessa dagana. Sjáum hversu lengi það endist... Nadia
mánudagur, maí 10, 2004 Ég er ofvirkur bloggari...
Já þetta er í þriðja skiptið sem ég blogga í dag. Ég tel það bara vera gott mál. Ég var úti að skokka áðan. Gekk betur heldur en ég bjóst við. Ég er reyndar með stingandi hausverk núna. Ég held líka að ég sé með áreynsluastma, því ég er bara búin að vera hósta síðan ég kom inn. Eða kannski eru lungun bara að hreinsa sig, þau eru örugglega orðin svört eða e-ð, þar sem ég reyki svo mikið. Já svona er nú það. Mig langar að fara á kaffihús núna, mökka úr mér lungun og drekka kaffi. Nei annars verð ég e-ð svo asnaleg þegar ég drekk kaffi. Byrja að titra ótrúlega mikið og svitna eins og brjálæðingur. Kannski ég fái mér bara vatnsglas. Hvað er að gerast fyrir mig? Ég get svarið það að ég er með stökkbreyttan persónuleika, ef þið skoðið einhverjar færslur síðan um jólin, þá er bloggið mitt svo hundleiðinlegt og þunglyndislegt. Ég geri ekki annað en að vorkenna sjálfri mér og reyni að vera e-ð ótrúlega hreinskilin með það að tala um niðurgang og svitalykt. Úff, ég skammast mín nú samt ekkert fyrir þetta. Bara skil ekki hvernig fólk nennti að umgangast mig á þessu tímabili. En það sem ég er að gefa í skyn hérna, er að ég er orðin skemmtileg núna. Af því að það er sumar, eða það er að koma sumar. Þá er gaman, já! Nadia
Jei...
Ég þarf ekki að þjást lengur. Ég þarf heldur ekki að röfla lengur á blogginu mínu, því ég er ótrúlega hamingjusöm núna. Ég var að fá hringingu frá vinnumiðlun, og ég er komin með vinnu í sumar! Já ég verð að vinna hjá Skrúðgörðum Reykjavíkur! En æðislegt, núna þarf ég ekki að húka inni í allt sumar. Já og í sambandi við myndina, þá held að ég hafni þessu tilboði. Víst ég er komin með almennilega vinnu, þá vil ég ekki gefa hana upp á bátinn fyrir frægð og frama. Já svona er ég skynsöm. Nadia
Vá...
Matt hringdi aftur í mig í morgun, ég talaði við hann í heila 3 tíma. Hann er ótrúlega skemmtilegur náungi, ég hló örugglega svona 90% af samræðunum. Hann benti mér á heimasíðuna sína. Hún er hérna . Hérna er svo karlinn, mér finnst hann nú ekkert svo perralegur.
Úhh en gaman...
Það var að berast mér mjög skemmtilegt tilboð í gegnum símann áðan. Maður að nafni Matt Marsh hafði samband við mig, hann er að leita af ungum stúlkum til þess að leika í erótískri gamanmynd. Ég hafði einhvern tíman skráð mig í þetta af gamni á Stansted flugvellinum. Maður átti að setja mynd af sjálfum sér, en ég lýsti mér bara eftir bestu getu og tók það sérstaklega fram að ég væri mjög góð leikkona. En í því stóð að honum leist svo vel á umsóknina mína, hann væri alveg til í að fá mig í prufu núna í byrjun júní. Hann myndi samt ekki borga fyrir flugið. Hann bað um heimilisfangið mitt svo að hann gæti sent mér handritið í pósti. Ég verð nú að viðurkenna að þetta hljómar dálítið spennandi. Hann tók það samt sérstaklega fram að hann vildi fá að sjá mynd af mér, og ef ég gæti sent hana sem fyrst. Um er að ræða e-ð aukahlutverk, en ég þarf samt sennilega að koma nakin fram. Sem mér finnst svo sem ekkert mál sko. Ég er alveg til í að gera þetta fyrir einhverja monnínga, en þetta er alls engin klámmynd, þetta er erótísk gamanmynd eins og ég tók fram. Þetta verður bresk framleiðsla þannig ég efa ekki um að húmorinn verði í gæðaflokki. Hann reyndar sagði að ég þyrfti sennilega að bæta á mig um svona 5-8kg fyrir hlutverkið sem hann hafði í huga handa mér. Það á ekkert eftir að vera neitt mál hugsa ég. Já ég er samt að íhuga þetta ennþá, veit eiginlega ekkert hvað ég á að gera. Svo er þetta kannski einhver perri bara sem er að plata mig út í e-ð vændi. Ég ætla að reyna að grennslast meira um þennan mann áður en ég held út til London. Nadia
sunnudagur, maí 09, 2004 Halló halló
Klukkan er núna að ganga tuttugu mínutur í tólf. Ég er vöknuð. Ég held að ég sé ennþá drukkin eftir gærkvöldið. Já Vegamóta-hóru þemað féll niður í gær. Ástæðan var sú að ég og Súsanna vorum bara einfaldlega ekki í stuði fyrir þetta. Ég var búin að hafa vonda tilfinningu fyrir þessu kvöldi í langan tíma, en ákvað samt að fara. Kvöldið sjálft var ágætt, ég og Súsanna byrjuðum heima hjá mér. Við vorum heldur rólegar til að byrja með. En skelltum okkur síðan niður í bæ. Fórum á Dillon til þess að byrja með, hittum Elvu í örstutta stund, svo lá leið okkar á Prikið. Já Prikið sem er bara drasl. Djöfulsins drasl er þessi staður. Enduðum kvöldið á 11. Í enda kvöldsins leið mér eins og verstri druslu, algjöru drasli. Það má alveg eins fleygja mér á haugana ég er svo mikið drasl núna. En ef einhver hefur not fyrir drasl eins og mig hringið þá endilega í mig í síma 8662646. Það er hægt að nota mig til alls, bara spyrjið. Jæja ég er farin að æla og grenja... Nadia
|