Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
fimmtudagur, október 30, 2003 Jæja ég hef ákveðið að gera leynilega lestrahestinum (sem ég held að sé Súsanna) til geðs og blogga dálítið fyrir ykkur.
Ég er búin að vera á fullu að æfa mig á sellóið síðan ég kom af æfingu í gær. Þá helst Minuet No. 2 eftir Bach, helvíti erfitt lag og finnst mér það verða falskara og falskara í hvert skipti sem ég reyni að spila það. Ég er líka orðin ansi sár á fingurgómunum eftir stífu strengina, en puttarnir hljóta bráðum að fara að aðlaga sig að sellóinu og byrja að mynda sigg eða e-ð, ekki nema að ég sé að fá blöðrur. Ég fór aftur í prufur fyrir leikritið á mánudaginn, ég hélt reyndar að ég væri komin inn en síðan þegar ég kom á staðinn þá var mér sagt það að það yrðu aftur leik- og söngprufur. Ég hélt að ég myndi fá hjartaáfall á staðnum, fyrir það fyrsta er ég svo ógeðslega feimin að ég myndi aldrei þora leika fyrir framan þetta fólk hvað þá syngja. En ég ákvað að verða eftir og fara í gegnum þessa kvöð, ég lék nú eiginlega ekki neitt í spunanum ég stóð bara eða gerði það sem mér var sagt að gera án þess að nota einhverja leikræna tilburði. Svo kom að söngprufunni sem var hræðilegt þar sem ég var svo stressuð að ég hljómaði eiginlega eins og jarmandi lamb. En ég komst samt áfram í leikritið og þar held ég að dansinn hafi eiginlega bara átt sinn þátt í því, ég efast um að "leikrænu" tilburðir mínir eða söngurinn hafi gert e-ð gagn. Það er gaman að þessu, þó kom mér á óvart hverjir komust ekki áfram þar sem mér fannst þeir standa sig frábærlega. Mamma kom heim á mánudaginn, tilefni dagsins tók ég til í herberginu mínu og allri íbúðinni. Ég og Selma fórum og náðum í hana upp á flugvöll og fengum einn Skittles poka á mann fyrir vikið. Mamma sýndi mér svo myndir af Eléu litlu og er hún algjört krútt. Hún er ótrúlega lík pabba sínum núna, en hún er alveg bókað með nefið hennar Láru. Ég hlakka ótrúlega til að hitta hana og hele familien um jólin! Jæja ég er að spá í að æfa mig smá á Minuet-inu áður en ég fer í tíma...verið sæl! Nadia
mánudagur, október 27, 2003 Idol, barnapössun og Cast Away
Byrjaði helgina á því að gera eiginlega ekki neitt. Ég fór yfir til Elvu og Eyrúnar og horfðum við á Idol saman. Ég er alveg gjörsamlega fallin fyrir þessari Önnu Katrínu hún mun eiga mitt atkvæði alla leið...þó svo að ég eigi aldrei inneign til þess að senda í þetta. En ég er nokkuð vongóð um að hún muni standa sig mjög vel. Á laugardaginn fór ég og kíkti í heimsókn til Selmu þar sem hún var að vinna á kaffistofunni í Gerðurbergi. Eftir smá kakó og vöfflur fengum við drauga-sms frá Súsönnu, og þá var hún bara stödd á bókasafninu. Heppileg tilviljun. Kom hún til okkar og sátumst við allar niður og ræddum um ýmis mál, sérstaklega uppeldi og alkahólisma. Eftir að Selma var búin að loka kaffistofunni kíktum við heim til mín. Ég kenndi Selmu að spila ABCD á selló og verð ég að segja að Selma mín stóð sig bara mjög vel, miðað við það að hún hefur aldrei snert selló áður. Ég bauð Súsönnu upp á te-kex þar sem hún var að sálast úr hungri og það var ekki til neitt ætilegra á heimilinu heldur en te-kex og ostur, hún át það með glöðu geði. Ég skellti síðan Justin Timberlake (Bara í Spýtuvatni) í græjurnar og meðan Selma var e-ð að msn stússast þá þóttumst ég og Súsanna vera miklir tónlistarmenn. Ég notaði sellóið sem "kontrabassa" og Súsanna notaði kassagítarinn minn sem tjah gítar held ég bara. Svo ákváðum við allar að stofna hljómsveit. Kvöldið fór svo í langt spjall með Selmu og barnapössun með Elvu seinna meir. Í dag er sunnudagur. Ég vaknaði klukkan 11 fór í sturtu og fékk mér að borða. Þegar klukkan var að verða 12:30 og ég var í þann mund að fara taka strætó hringdi síminn minn og var mér veittar þær upplýsingar að ég þyrfti ekki að mæta í vinnuna þar sem stelpan sem ég átti að taka aukavakt fyrir hætti við að láta mig vinna fyrir sig og ákvað þá í staðinn sjálf að taka vaktina...skilduð þið þetta? Frekar illa orðað hjá mér en ég nenni ekki að umorða þessa setningu, engu að síður voru þetta frekar ónauðsynlegar upplýsingar en ég ætla ekki að fara út í þá sálma. Þannig ég ákvað bara að setjast fyrir framan besta vin minn, sjónvarpið. Ég horfði á endursýningu af Grönnum, og skipti síðan yfir á bíórásina þar sem var verið að sýna Cast Away með Tom Hanks. Þetta er ein af bestu myndum sem ég hef séð, þó að í fyrsta skipti sem ég horfði á hana tók það mig 3 daga því að ég sofnaði alltaf yfir myndinni (ég var bara þreytt myndin sjálf var ekkert leiðinleg). Tom Hanks er svo skemmtilegur leikari ég dýrka hann, hann nær einhvern veginn að vera dramatískur án þess að vera hallærislegur eins og sumir leikarar eiga til með að vera. Þessi mynd er bara ótrúlega vel gerð og bara yndislega fyndin og sorgleg. Ég fór að hágrenja þegar hann missti boltann sinn, mér var næstum því farið að þykja vænt um hr. Wilson. Kíkti síðan til Elvu í kvöld og horfðum við á American Pie Wedding á DVD. Fín mynd ágætis afþreying eins og maður segir. Jæja ég er farin upp í rúm, það er að segja ef ég þarf ekki að klífa yfir heilt fjall af fötum. Nadia
|