Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, september 18, 2004 Æh, ég var að horfa á sænska mynd á RÚV. Myndin fjallaði um mann sem fékk Alzheimer, ótrúlega sorgleg. Ég veit ekki hvað er að koma yfir mig, græt yfir öllum myndum og Oprah þáttum, helvítis gráa hár og helvítis breytingaskeið...
Já bara svona til þess að nefna það einu sinni enn þá er afmælið mitt á morgun (í dag), ég er samt frekar svekkt yfir því þegar ég spyr hvort að fólk ætli ekki að koma þá svara flestir "jú ég kíki kannski" eða "jú gæti verið". Halló, ég er ekki að borga 20 þús kall svo að fólk geti kíkt og farið, annað hvort komið þið eða ekki. Oh my precious birthday... Gærdagurinn og dagurinn í dag byrjuðu ekkert svakalega vel. Í gær vaknaði ég dauðþreytt og fór í skólann átti eftir að lesa e-ð í Kaldaljósi þannig ég nýtti öll göt í það, sem tókst svona frekar illa. Ég gat ekki lesið nema 10 blaðsíður og þá var ég farin að dotta yfir bókinni. Keypti mér kaffi sem gerir mig svo stressaða að mér leið ekki vitund betur. Kíkti síðan á þessa blessuðu ræðukeppni sem ég hefði alveg eins geta sleppt, því ég var dauðþreytt og fáránlega pirruð. Eftir sirka hálftíma var ég komin í svefngalsa og hló af öllu og öllum, hætti að fylgjast með keppninni þar sem mér fannst rökleysa og leiðinlegheit einkenna þessa keppni, leið eins og ég væri að fylgjast með sjálfri mér vera að halda fyrirlestur. Dagurinn í dag byrjaði á því að ég vaknaði við símhringingu frá Elvu frænku, áttaði mig síðan á því að ég hafði sofið yfir mig þar sem ég var að læra til hálf tvö í nótt við að klára svara spurningum úr sálfræði og reikna heimadæmi í mjög pirruðu skapi. Elva kom og náði í mig og ég þaut upp í skóla beint í stærðfræðitíma, nývöknuð og skildi ekki bofs hvað var um að vera í tímanum. Eftir skóla kom mamma og náði í mig, fórum við í Smáralindina til þess að leita af afmælisfötum. Þarna strunsaði ég um í vondu skapi með mömmu í eftirdragi. Ég var alveg við það að fá móðursýkiskast þarna inni, og mamma reyndi að mýkja mig til með því að segja "þetta væri flott á þér, en þetta?" og ég svaraði oftast einhverju eins og "nei oj þetta er ógesslega ljótt, ohh hvað það er ljót föt hérna". Ég held að starfsfólkið í Smáralindinni hafi sennilega haldið að ég væri einhver ofdekruð frekja. Greyið hún mamma, ekki gaman að lenda á mér í vondu skapi, en hún þraukaði þetta út. Hún fann meira að segja kjólinn sem ég keypti, ansi smart verð ég að segja. Svo gaf hún mér líka stígvél í afmælisgjöf, þannig ég er mjög ánægð. Gott að eiga þolinmóða mömmu með góðan smekk á skóm. Ég fékk sms frá Skotunum, þeir eru í bænum þannig þeir koma sennilega í afmælið! Jei þeir eru svo skemmtilegir, ég vona að þeir komi, og auðvitað þið öll. Mary J. Blige samdi einu sinni lag um fyrirtíðarspennu, ég er að spá í að fara gera það sama... Nadia
þriðjudagur, september 14, 2004 Ja hérna hér...
Fór á myndina Dís áðan, ágætis mynd bara. Fannst hún vera svona íslensk útgáfa af Bridget Jones. Kom margt fram í myndinni sem mér fannst ég kannast við, gott að maður sé ekki einn að pæla í svona hlutum. Já og aðeins 4 dagar í afmælið mitt. Mér er farið að líða eins og ellismelli, fór nefnilega í klippingu um daginn og fannst þar eitt grátt hár. Já ég er ekki að ljúga, ég er ekki einu sinni orðin tvítug og ég er strax komin með grátt hár, þannig kannski að þessar skapsveiflur standi af breytingaskeiðinu...hmm. Og loksins náði ég að klára Hitchhikers Guide to the Galaxy, kláraði hana reyndar í seinustu viku. Er nefnilega í áfanga sem kallast yndislestur og fór ég í viðtal í dag um bókina. Kom mér á óvart orðaforðinn sem vall upp úr mér á meðan viðtalinu stóð. Bókin er reyndar uppfull af orðum sem ég skil ekki bofs í, en einhvern vegin komu þau öll út í viðtalinu, sem er bara gott mál (vona ég). Núna ætla ég að vera pirrandi og láta ykkur fá æðislegt lag á heilann, þeir sem vilja ekki taka þá áhættu og fá lagið á heilann og eiga þá hættu að berja hausnum oft í vegginn til þess að reyna að losa sig við lagið, ættu ekki að lesa lengra... "Ég hlakka svo til! Ég hlakka alltaf svo til! En það er langt ó svo langt að bíða, og allir dagar svo lengi að líða. Já í sumar það er satt þá skein sólin bla bla bla, og þau flugu hjá í snatri já fuglarnir og sólin. En nú er þetta breytt það bara gerist ekki neitt og tíminn rótast ekkert og aldrei kemur AFMÆLIÐ MITT!" NaDiA
|