Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, apríl 26, 2003 Ungfrú Ísland.is
Horfði á Ungfrú Ísland.is í gær, og verð ég að viðurkenna að þessi keppni er nú helmingi skemmtilegri heldur en Ungfrú Ísland. Frekar flott keppni og heldur nýtískuleg, og ég hugsa að þegar þessar stúlkur eiga eftir að horfa á þessa keppni eftir svona 10-20 ár þá verður þetta örugglega eilítið hallærislegt...en já svona er þetta. Ég var bara mjög sátt með sætin, eina sem mér fannst virkilega að þessari keppni var kynnirin Ungfrú Ísland.is 2002, já hún er ekki einu sinni sæt eða með góða framkomu...hvernig í andskotanum vann hún keppnina í fyrra? Fyrir að vera sjálfboðaliði?? Ég skil þetta ekki. En ég heyrði einhver staðar að í þessari kepnni væri farið eftir persónuleika og fegurð. Ég verð nú að segja, gerir það nú ekki aðeins meiri kröfur til okkar kvennana um hvernig ímyndin okkar á að vera? Skemmtileg, gáfuð og sæt! Er ekki nóg að vera skemmtileg, gáfuð og ljót eða heimsk og falleg? Það væri nú þægilegt að ef allar fallegu manneskjurnar í heiminum væru heimskar og þeir sem væru ljótir væru gáfaðir, væri þá ekki auðvelt að vera til? Á þessari stundu heyri ég mömmu garga og öskra af reiði, því að hundur nágranna okkar skeit um allar svalirnar okkar. En því miður voru nágrannarnir ekki heima til að hlusta á mömmu hella sér yfir þá...það hefði verið fyndið, þá hefði ég staðið á bak við mömmu og myndi glotta svona lymskulega meðan mamma stæði þarna alveg brjáluð og frussaði yfir þá...muhahahaha! Þórdís Nadia
fimmtudagur, apríl 24, 2003 Snobb
Já fyrsta sem að fólk hugsar þegar það heyrir orðið snobb er ríkt og leiðinlegt fólk á borð við Jón Ólafsson og Friðrik Weisshappel og fleiri, og vil ég taka það fram að ég held að oftast þegar fólk er snobbað þá hefur það ekki hugmynd um það sjálft. Ég hef oft tekið eftir því að fólk sem er á listabraut (þá er ég alls ekki að tala um alla) á það til að vera snobbað og telur sig oft vera miklu betra heldur en "venjulega fólkið", því við erum svo ótrúlega hversdagsleg og höfum ekki hundsvit á list. Það var líka á tímabili að nefndarfólkið átti erfitt með að labba framhjá manni án þess að það rigndi upp í nefið á þeim. Ég er alls ekki að alhæfa, en þetta er hvernig ég hef orðið vör við snobb í skólanum. Snobb er til í alls konar stærðum og gerðum og virðist maður oft ekki taka eftir því í fyrstu, það gæti til dæmis vel verið að ég sé snobbuð varðandi einhvern hlut án þess að mér finnist það vera e-ð snobb. Hægt er að taka gott dæmi um matsalinn í FB. Fyrsta árið mitt í FB sátu ég og minn árgangur úr hólunum og fellunum úti í einu horni sem var með 2 lítil borð og 8 stóla sem var allt of lítið fyrir c.a. 30 unglinga. Á öðru árinu okkar náðum við sætum af graffiti gaurunum og hröktum þá "óviljandi" í burtu frá borðinu þeirra. Mig minnir að það hafi verið á öðru árinu þegar nokkrir busar settust á "okkar" borð, en í rauninni sátu þau á þeim helming sem enginn okkar sat á. Ég man ekki alveg hvaða fólk sat þarna en það var alla vega Hlynur og einhver stelpa með blá gleraugu. Fólkið á borðinu "mínu" var ekkert allt of sátt að einhverjir busar skyldu voga sér að setjast á okkar borð (halló við vorum nú árinu eldri!!), þannig að þau tóku upp á því að senda þeim hótunarbréf og segja þeim að drulla sér af borðinu "okkar". Að lokum færðu greyin sig aftast í matsalinn og hafa ekki setist við þetta borð aftur. Ég vil bara taka það fram að ég tók ekki þátt í þessum hrakningum ykkar og vona að þið fyrirgefið fólkinu sem áttaði sig ekki á því að það væri "snobb", þau hafa þroskast mikið eftir þessa atburði (halló þau eru nú árinu eldri!!). Þetta dæmi sem ég tók fyrir ofan er árlegur viðburður uppi í FB, og með þessu dæmi vona ég að fólk sjái að það er öllum frjálst að sitja þar sem þeir vilja, sama hve gamlir þeir eru, hvernig þeir líta út eða á hvaða braut þau eru. Verum góð ekki snobbuð! (þessi setning á að vera lesin með undirspili "Heal The World" eftir Micheal Jackson) Þórdís Nadia
Núna fer mér að lítast á blikuna...ég ætti kannski að fara í kynskiptiaðgerð??
-Donnie- You're Donnie and you belong to Katie Marie. You come off as a little angry or quiet, but you're actually a pretty cool person. You're deeper than people think, and you're the one that will come back to make sure your friends are ok,even if you left at first. Which of "The Guys" Are you? brought to you by Quizilla
Samkvæmt þessum quizilla prófum þá er ég væmið, viðkvæmt trailer trash?? Ég er farin að efast að ég sé einhvers virði...tók þetta próf hérna, þó að ég sé ekki með strák, langaði bara að sjá hvernig kærasta ég væri.
-Sensitive- You're Sensitive, and you'd like to stay that way. Sorry,listened to a bit too much Jewel there. You're sweet and very emotionally charged. You definitely love the person you're with, and always want to know how they're feeling so you can make sure they're happy. What Kind of Girlfriend Are You? brought to you by Quizilla Hvað er að gerast? Er ég virkilega svona, ég vil meina að ég sé það ekki...hvað finnst ykkur??
|