Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, maí 29, 2004 You're an Etch-a-Sketch!! You're the creative, artsy type who doesn't need to actually utilize a single muscle group in order to have fun. Doesn't matter though, you're still cool. What childhood toy from the 80s are you? brought to you by Quizilla
föstudagur, maí 28, 2004 Hæ Stína Stuð! Halló Kalló Bimbó...
Ja hérna, bara komin helgi. Og það þriggja daga helgi! Jei, vá hvað ég er ótrúlega sátt við það að vinna þarna í bæjarvinnunni. Þetta er svo fínt, við sitjum á rassgatinu allan daginn og tölum út í eitt. Ef við erum ekki að tala saman meðan við erum á reyta arfa þá förum við í alls konar orðaleiki. Sem er gaman og fræðandi. Ég held að ég sé bara komin í andlegt jafnvægi við það að vinna þarna, er í svo góðum tengslum við nátturuna fattiði. Svo er bara spurning hvað á að gera í kvöld, allir að vinna eða e-ð. Nenni samt ekki að hanga heima, en kannski er komin tími til þess að slaka á drykkjunni. Svo er ég að fara í útflutningspartý á morgun, en synd að bærinn skuli loka klukkan 3, þá er ekkert gaman. Ekki nema að einhver sé að halda eftir-partý. Mútta bara á leiðinni til Osló á sunnudaginn. Ykkur öllum er boðið í partý til mín þá! Hahaha, nei ég segi svona, mamma ég veit að þú lest þetta. Ég lofa ég skal ekki halda partý. En jæja, kannski tími til að fara í sturtu... Ja bitte... Nadia
miðvikudagur, maí 26, 2004 Ótrúleg heppni!
Ég er búin að vera að svekkja mig í allan dag við að hlusta á fólk í vinnunni hjá mér vera að tala um að það ætli á Pixies tónleika. Bæði í dag og í gær. Frekar pirrandi. En ég ákvað samt að skemmta mér á minn eigin hátt og halda heim á leið úr vinnunni á MSN, yes my only friend. Þegar ég var búin að vera spjalla þar í ca. 1 tíma hringir Heba í mig og tilkynnir mér það að hún eigi aukamiða á Pixies. Ég sem sit ennþá drullu skítug eftir vinnuna við tölvuna, fer í kerfi og veit ekki hvar ég á að byrja. Maggi minn var svo góður að skutla mér heim til Hebu, og ég var svo leiðinleg að tala um hvað ég væri heppin alla leiðina. Við skellum okkur á tónleikana, þeir byrja svaka vel og var ég í góðum fílíng. Eftir ca. hálftíma verður ólíft þarna inni vegna hita og súrefnisleysis. Ég, Heba og Arnbjörg stóðum næstum því fremst við sviðið og með gott útsýni og pláss. En við ákveðum að fara út í smástund að fá okkur ferskt loft því okkur var svo heitt. Þegar við komum tilbaka þá er nátturlega búið að taka stæðið sem við vorum í. Þannig að við fórum aftast, þar sem var svo mikið af fólki að maður sá ekki neitt (á þessari stundu öfundaði ég og hataði hávaxið fólk). Svo fór fólk að troðast og troðast og enn og aftur troðast. Það var orðið svo heitt þarna inni að svitin lak af mér. Allt í allt voru þetta góðir tónleikar, en rólegir að velja ömurlegan stað til þess að halda þá. Það hefði alla vega mátt vera loftræsting þarna inni. Yes and by the way, where is my mind? Nadia
Ég var að uppgötva dálítið merkilegt. Kannski ekki merkilegt. En það virðist sem að þegar strákar fara með húfur eða hatta á djammið, þá er eins og stelpur hafa einhvern ótrúlega áhuga að máta húfurnar eða hattana þeirra. Sérstaklega fullar stelpur. Hafið þið ekki séð þetta? Þær rífa af þeim derhúfurnar og setja þær á hausinn og fara svo að dilla sér á dansgólfinu.
Ég held að þetta sé gott ráð fyrir þá sem er að leita sér af "höstli" á djamminu. Nadia
þriðjudagur, maí 25, 2004 Bla...
Bla bla bla bla bla bla bla bla bla bla bla bla bla bla. Bla bla bla, bla bla bla bla bla bla bla bla bla. Bla bla bla bla bla bla... Nadia
sunnudagur, maí 23, 2004 Keflvíkingar eru fífl!
Fyrir utan þá góðkunningja sem ég þekki hérna í Keflavík þá er ég ekki að ljúga þegar ég segi að restin af þessum bæ er hundleiðinleg og dónaleg. Ég hef aldrei upplifað annan eins dónaskap og hroka á einu kvöldi. Samt í rauninni hef ég aldrei fundið fyrir þessu áður þegar ég hef erið hérna í Keflavík, en í gær var bara eins og það stæði á enninu á mér "ÉG ER REYKVÍKINGUR VERIÐ LEIÐINLEG VIÐ MIG!". En þrátt fyrir allan þennan dónaskap þá skemmti ég mér konunglega með Elvu minni. Við byrjuðum í teiti heima hjá Margeiri frænda, þar sem hann bauð okkur upp á jelly-staup, sem er vægast sagt viðbjóður. Þetta minnti mig ótrúlega mikið á að kyngja horslummu, þegar ég tók staupið. Teitið var samt heldur slappt til að byrja með þar sem við sátum í sófanum að horfa á Bee Gees live á DVD. En fólkið hresstist við. Margeir frændi minn hélt því innilega fram að Oddur Ingi vær í hljómsveitinni Ælu. Svo fékk hann seinna að frétta að Haffi vinur hans sem var meðal annars í teitinu væri trommarinn í Ælu. Margeir trúði því ekki, og þurfti að spurja alla inni til þess að vera viss. Ég veit ekki undir hvaða steini hann hefur verið. Við byrjuðum kvöldið á aðalstaðnum DUUS. Þar sem fólk var hresst og kátt og mjög kurteist yfir höfuð! Hah nei Þórdís, á hvaða plánetu varst þú eiginlega, alla vega hugsa ég að hún hafi ekki verið nálægt Keflavík. Við sátumst við e-ð borð sem snéri eiginlega baki í dansgólfið. Heldur óþægileg staðsetning en töldum við þetta þó vera skárri en að standa. Svo byrjar trúbadorinn eða einhver andskoti sem var að spila þarna að syngja "The final countdown" þá varð allt liðið þarna inni tryllt. Allir byrjuðu að hrista á sér rassana, þar á meðal einhver blindfull gella sem var bókstaflega með rasskinnina strjúkandi upp við mína kinn (andlitskinn). Eftir að þessi gella var búin að skeina sér á andlitinu á mér í þó nokkurn tíma, missti ég alla þolinmæði og gaf henni harkalegt olnbogaskot í afturendann. Stelpan sem var svo suddalega drukkin tók varla eftir þessu en missti jafnvægið og datt í gluggasylluna. Eftir allt þetta vesen ákvað ég að kveikja mér í sígarettu, nema það að ég var ekki með kveikjara. Þannig ég ákvað að biðja gaurana sem sátu við sama borð og ég að lána mér kveikjara, þá fékk ég þetta svar "Nei, við reykjum ekki! Það er ógeðslegt að reykja, hohoho!". Og stuttu seinna kom sami gaur og reyndi að dansa við mig. Fáviti. Því næst labbaði strákur upp að Elvu og spurði hana hvort að hann gæti fengið lánaðan kveikjara, hún rétti honum kveikjara, hann fleygði kveikjaranum aftur í hana. Hvað er að fólki? Kann það enga mannasiði? Við enduðum kvöldið á einhverri strippbúllu, þar var alveg ágætt. Svo fórum við heim og sofnuðum yfir Lizzie Maguire. Ég vil þakka Evu fyrir að nenna hanga með okkur allt kvöldið og borga fyrir okkur inn á Casino. Ég vil þakka strippörunum sem gerðu allar samræður áhugaverðar. Ég vil þakka Adda fyrir að hafa meiri áhuga á mér heldur en strippörunum. Gaman er að koma Keflavík, kvöldin þar þau eru engum lík... Nadia
|