Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, nóvember 20, 2004 Rúsínubolla!
Afsakið þessa löngu þögn sem hefur dvalið á blogginu mínu, eða hún var nú kannski ekkert svo löng, samt ólíkt mér að láta líða svona langt á milli. Það sem er helst búið að vera á döfinni hjá mér er í fyrsta lagi sögurtigerðin mikla, sem var já ansi mikil vandræði til að byrja með. Þar sem ég er vön að gera allt á seinustu stundu, var ég frekar sein að afla mér heimilda fyrir þessa stóru ritgerð sem átti að vera 8-10 bls. Ég ákvað fyrst að skrifa um Tjetsjeníu og Rússland en þar sem ég var með frekar takmarkaðar heimildir ákvað ég að skipta um viðfangsefni. Já, já, ég skipti yfir sjálfstæðisbaráttu baska, fór á bókasafnið og fann eina skitna bók og aðra bók um Franco. Jæja, þar sem allar heimildir voru á ensku og þar sem ég er ekki vel að mér í þessu máli gekk þetta eiginlega ekkert upp, ég var orðin alltof sein með ritgerðina. Klukkan var orðin 10 á mánudagskvöldi og ég átti að skila ritgerðinni daginn eftir, ég reyndi eins og ég gat að botna e-ð í þessari blessaðri einu bók sem ég var með, en endaði það svo með því að ég grýtti bókinni í gólfið og fór að skæla. Ég hringdi í Selmu kjökrandi og sagði henni að ég vissi ekkert hvernig ég ætti að fara að þessu. En Selmulingur er svo góðhjörtuð að hún og mamma hennar buðu mér að koma til þeirra og þær myndu hjálpa mér með ritgerðina. Svo fengu þær enn betri hugmynd að ég við myndum skrifa bók um mannréttindi fatlaðra, þar sem mamma hennar Selmu er nýútskrifaður þroskaþjálfi og átti því allar heimildirnar. Ég fór yfir til þeirra og Selma (mamma hennar Selmu, já hún heitir líka Selma) var svo yndisleg að vaka með mér 2 nætur í röð til 5 að klára að skrifa ritgerðina. Og þetta var bara helvíti flott ritgerð, ég veit ekki hvernig ég hefði farið að þessu. Já mamma hennar Selmu er snillingur. Jæja svo nú er komin helgi. Ég skellti mér í ræktina í dag með Önnu Stellu. Við ákváðum að fara í Pallastuð í Hreyfingu, eða hvað þetta heitir. Pallastuð III, sem sagt fyrir lengra komna. Ég var ekkert svo viss í fyrstu með þetta, hvort að ég gæti þetta, en ákvað að kýla á það. Okei í fyrsta lagi var ég í mikilli flýti þegar ég tók saman leikfimisfötin, þannig að eina sem ég fann, voru alltof stórar Adidas yoga buxum með gati aftan á, og svo risastóran rauðan Miðbergsbol sem leit út eins og náttkjóll á mér. Alla vega, þá fór ég í þetta blessaða Pallastuð. Byrjaði vel og ég hugsaði með mér "Úh je ég er bara að ná þessu, djöfull er ég kúl maður", svo hélt þetta áfram og varð alltaf erfiðara og erfiðara. Sporin urðu bara fáránlega flókin og ég gat varla fylgt eftir, ég var farin að hringsnúast þarna eins og auli og eina sem ég heyrði var "Osso mambó-sporið, lyfta upp, sparka, vúúúh komassso!". Mér var virkilega farin að líða eins og algjörum fávita þarna þar sem ég var í RAUÐUM risastórum bol og var þarna eins hoppandi aðvörunarskilti. Sjitt, eftir hálftíma gafst ég upp og bakkaði hægt og laumulega út. Ég var að horfa á Donnie Darko áðan, úff hvað Jake Gyllenhall er hot! Hot, hot, heat! Segi ég nú bara. Hefði ekkert á móti því að smútsja hann og kyssa. Yumm, yumm, fyrir utan það að hann er með Kirsten Dunst, sem er já fín, ekki eins sæt og ég þó. Nadia
sunnudagur, nóvember 14, 2004 Æ mig auma...
Ég vaknaði í morgun helaum vegna harðssperra eftir afró og með einhvers konar astma sökum mikilla reykinga gærkvöldsins. Helgin fór að mestu leiti í að drepa seinustu lifandi heilasellurnar í þessu litla heilabúi mínu og er þess vegna mjög lítil virkni þar í dag. Elva Rut frænka átti afmæli í gær og var tuttugu ára. Hélt hún upp á afmælið sitt á Sólon og var mikið fjör fyrir utan nokkur vonbrigði sem ég upplifði á mína hálfu vegna stráks sem ég hafði augastað á var greinilega orðin upptekinn allt í einu og var kvenmannsefnið í frekari ljótari kantinum ef það ætti að bera okkur saman. En það eyðilagði ekkert kvöldið fyrir mér því ég sá hvað drengsstaulinn var skotinn í henni að ég gat ekki annað en verið ánægð fyrir þeirra hönd. Hins vegar var ég umsetinn af ungum manni sem var með skapahár í andlitinu, sem hann kallaði víst skegg. Hann elti mig heim með myndavélasímann sinn í von um að ná mynd af mér, sem var ekki að fara að gerast. Sem betur fer var Selma með mér annars hefði kvöldið sennilega endað á einhvern óhugnalegan hátt. Elva var svo góðhjörtuð að vekja mig í dag með sveittum hamborgara frá Hamborgarabúllunni. Sátu ég, Selma og Elva saman og töluðum um daginn og veginn og var það mjög gaman. Hins vegar var ekki gaman eftir að þær fóru þá var ég farin að fá astma aftur og frekar mikinn. Ég hringdi dauðskelkuð í mömmu og hún sagði mér að taka leigubíl í vinnuna til sín. Hvað ætli að leigubílstjórinn hafi haldið þegar hann hafi fengið farþega sem tók stór og mikil andköf og bað hann um að keyra sig á Klepp? En hann var ansi snöggur og fékk ég púst hjá mömmu. Ég sá einhverja tryggingaauglýsingu áðan, og var þar viss manneskja í auglýsingunni sem já er ágætisleikari (en ekki það að auglýsingin sjálf hafi krafist mikilla leikhæfileika) en ekkert spes hvað útlit varðar, sem er eiginlega stór þáttur í auglýsingum, þá meina ég ekki að maður þurfi að vera fallegur til þess að leika í auglýsingu þó að það væri ekkert verra. Hann er bara ekkert spes, bara með svo e-ð gleymanlegt andlit og ekkert minnistætt við það, og líka það að leika í tryggingaauglýsingu býður eiginlega upp á það að þér verði gleymt fljótlega og ferillinn þinn ónýtur. Nei okei kannski ekki alveg, alla vega það sem var pointið í þessari efnisgrein til að byrja með er: ég er búin að vera á skrá hjá Saga Film síðan ég var 8 ára og ég er ekki frá því að þeir hafa bara hringt tvisvar í mig. Ég er ekki að skilja þetta, reyndar þarf ég að endurnýja myndina mína þar sem hún er frá því ég var 13 ára. En hvernig gat þessi gleymanlegi gaur fengið þetta hlutverk en svo hefur bara verið flett framhjá myndinni minni í mörg ár. Reyndar hef ég heyrt að leikstjórarnir fyrir þessar auglýsingar eru mjög oft frá Frakklandi eða einhvers staðar þaðan, og þeir vilja fá þetta týpíska íslenska útlit. Sem ég greinilega er ekki með, en já þetta er fúlt og ég er ekki sátt. Ef ég ætla samt að fara að skrá mig aftur þarna veit ég alveg að ég það myndi ekkert ganga vel þar sem ég er með 10 aukakíló á mér sem ég þarf að losna við. En ætti ég að losna mig við þau vegna svo að ég komist á skrá Saga Film, er það ekki af röngum forsendum? Þetta er komið gott... Nadia
|