Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
fimmtudagur, janúar 27, 2005 Dídíddí...
Mig langar ekki heim. Vid fórum á jet ski í gær og vorum á thví allan daginn, ótrúlega gaman. Vid fórum á ströndina og leigdum jet ski, keyrdum sídan á jet ski-inu heim til Gunna og ég nádi mér í stuttbuxur. Sídan keyrdum vid ad einhverri lítilli eyju thar sem vanalega er enginn á, en í thetta skiptid var komin heil fjölskylda á eyjuna sem láu flest öll hálf nakin í sólbadi. Vid létum thad ekkert á okkur fá, settumst nidur og bjuggum til fígúrur úr sandinum, ég bjó til glæsilegan kassa, Gunni vildi meina ad hann væri ad búa til höfrung en einhvern veginn fékk ég thad ekki út. Á leidinni til baka ákvádum vid ad stinga okkur í sjóinn thví hann var heldur volgur. Sjórinn hérna er ótrúlega fallegur svona grænblár á litinn en samt ótrúlega tær. Ég hoppadi út í og spyrnti mér vid botninn og er núna med 5 agnarsmáar flísar á ilinni sem ég næ ekki úr. Vid skiludum jet-skiunum og fórum heim á jeppanum hans Gunna (lítill blæju jeppi). Gunni spurdi mig hvort ad ég vildi keyra og ég tók vid thví. En eins og thid kannski flest öll vitid thá er ég ekki med bílpróf og kann ekki einu sinni ad keyra sjálfsskiptann bíl. Ég settist vid stýrid og Gunni kenndi mér allt thad sem ég thurfti ad gera. Fyrsta mínútan gekk vel, en sídan kom ad thví ad ég thurfti ad keyra í gegnum hlidid fyrir utan húsid hans, sem er ansi thröngt. Thegar ég ætladi ad hægja á mér thá einhvern gerdi ég akkúrat öfugt og gaf í, svo heyrdi ég Gunna bara segja "nei nei nei, stígdu á bremsuna" og thá steig ég óvart á bensíngjöfina og klessti á hlidid. Svo bakkadi ég fávitalega til baka og ein stór spýta af hlidinu datt nidur, hún datt á thann hátt nidur ad thad vantadi bara einhvern til ad öskra "timbeeeeeer". Gunni leit á mig og sagdi "hálfviti". En enginn skadi var skedur thví ad bíllinn slapp alveg og nádi Gunni ad laga hlidid. Verd ad vidurkenna ad mér fannst thetta dálítid fyndid. Um kvöldid baud Gunni mér út ad borda á Ferry House, veitingastadinn hans Völla Snæ. Vid erum búin ad vera glugga í einhverja ferdamannabæklinga til ad sjá hvad vid getum gert, og er hann Völundur Snær bara ansi vinsæll hérna á eyjunni. Alla vega virdist sem ad allir thekkja hann og kom hann tvisvar fyrir í einum bæklingnum. Fyndna vid thetta allt saman er ad hann er kalladur Worly hérna á Bahamas. En já vid fórum á thennan veitingastad og var thetta 4 eda 5 rétta máltíd sem mér var bodid upp á. Ótrúlega gódur matur, meiri hlutinn var meira ad segja tengt einhverjum sjávarréttum, en ég virtist alveg geta bordad thad med bestu lyst. Vid komum heim og enn aftur sofnudum vid yfir sjónvarpinu, thad var samt sem ádur huggulegt og thægilegt ad sofna thannig eftir annasaman dag. Núna er klukkan ad ganga níu um morguninn, og ég er ad blogga thvi ad Gunnar Chan er sofandi. Vi ses fysen... Nadia
mánudagur, janúar 24, 2005 Halló halló...
Er búin ad vera ad reyna ad mana mig í ad blogga í allan dag, nenni thvi ekki. Er ekki alveg viss hvad á ad segja, en ég nenni ekki ad fara ad sjá eftir thví ad hafa ekki bloggad eftir ad ég kem heim, thad yrdi heldur fúlt. Jæja, gærdagurinn var fínn. Vid vöknudum óviljandi klukkan 7 um morguninn, fórum á fætur og vissum eiginlega ekki hvad vid ættum ad gera af okkur. Eftir ad hafa stadid í ca. tvo tíma klórandi okkur í hausnum, ákvádum vid ad kíkja adeins nidur á strönd. Thar fengum vid okkur bjór og fékk ég ad smakka einn af tjódarréttum Bahama-búa, sem var Conch-salat. Ég var búin ad predika alveg yfir Gunna ad ég myndi ekki snerta neina sjávarrétti, en thetta salat var bara ansi gott, og mjög sterkt. Eftir thennan gómsæta morgunmat/hádegisverd, löbbudum vid adeins á ströndinni og kíktum í nokkrar búdir, thar sem ég var ad leita af póstkorti til ad senda systir minni. En fundum ekki neitt sérstakt, vid ákvádum thá bara ad ég Gunni myndi taka af mér einhverja asnalega mynd og prenta hana út og vid myndum sídan senda hana bara. Vid komum heim og thá var tekin sú ákvördun ad hoppa út í sjóinn, thad er nefnilega bryggja hérna beint fyrir framan húsid hans. Eftir thessa ædislegur og villtu lífsreynslu, og bædi næstum thví dáin úr kulda héldum vid út ad snæda en einn gódan kvöldverdinn. Kíktum adeins í casinoid thar sem Gunni spiladi Black Jack og ég fékk mér margaritu, Gunni grútapaði og héldum vid heim og sofnudum yfir "White men can´t jump". Núna er Gunni ad gera vid einhvern leikfangabíl thar sem vid ætlum ad fara leika okkur med thad fyrirbæri sem kemst upp í 100 km á einni sekúndu, ef ég nádi thví rétt. Ciao Nadia
sunnudagur, janúar 23, 2005 Jæjaaaa....
Er loksins komin til Bahamas. Er reyndar andvaka núna thvi ad tímamismunurinn er svo asnalegur, klukkan er ad ganga 3 hérna en ég held ad hún sé um 8 heima. Thetta er allt svo óraunverulegt, ég mætti í morgun á einhvern bleikan flugvöll og svo allt í einu er ég orðin andvaka klukkan 3 um nóttina, hvad gerdist eiginlega í millitíðinni?? Sko, ég lenti um 2 leytid á bleika flugvellinum Freeport, fyllti út e-ð eyðublað og náði í töskuna mína. Gekk út og sá ekki neinn, leit til beggja hliða og sá ekki neinn (sem ég thekkti thad er ad segja). Svo bara geng ég áfram og hugsa "djöfulsins, manni er ekki kominn, eða ég er í candid camera eða einhvern andskotinn, helvítis!". En ekki leið á löngu fyrr en djúp karlmannsrödd hvíslaði að mér "Halló", og ég roðnaði upp í haus "hver er thessi myndarlegi madur" hugsadi med mér. Nei smá djók, ég ætla ekki ad fara breyta thessari lýsingu í e-d álíka og Raudu Seríurnar. Hoho. Anyways, gunni (hey thad er ekki hægt ad skrifa stórt g...gggg...neibb) kom og sótti mig. Á sínum fína jeppa og alles. Stoppuðum við í trjákofanum hans og héldum svo áleiðis út í búð að versla. Svo að sjálfsögdu ad thví ég var ad koma hingad í fyrsta skipti, var gunnar ad kynna mig fyrir alls konar thjódardrykkjum. Fyrst var thad Kalik bjórinn, sem er bahamaískur bjór, mjög fínn. Svo var thad Gúlli e-d (hey kom stórt G! GGGG), og var thad einhvers konar kókosmjólk út í áfengi. Ég var orðin vel ölvuð eftir thessa tvo drykki. Svo tók herramadurinn mig út ad borda, thar eitt hvítvínsglas fylgdi matnum, thid getid rétt ímyndad ykkur hvad ég var ordin gelgjuleg og flissandi tharna í endann. En thar er ekki sögunni lokið, thvi vid rákumst á Toni (held ég ad hann heiti) vin hans gunna, sem er ad vinna á bar, en thad vard nátturlega ad stoppa vid thar, og ræddum vid um heimsmál og kynlíf hans toni's meðal annars, enda ekki madur ad verri endanum. Eftir ad ég var farin ad bidja toni um ad hafa kynferdismök vid mig, dró gunni mig heim. Þar sem ég lagdist nidur og steindrapst, mjöööög skrautleg. Og thetta var by the way klukkan 11, núna er klukkan ad ganga 3 og ég er fersk og andvaka. Ekki vön thessu. Já thetta er búid ad vera ansi skrautlegt hérna, ótrúlega falleg eyja, skemmtilegt fólk og mjög gott útsýni hérna úr kofanum hans gunna. Jæja spurning um ad reyna ad fara ad sofa eda reyna ad komast inn á thetta msn. For helvede, ég ætla fá mér sígó. Heyrumst.... Nadia
|