Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, apríl 24, 2004 Ég er ónýt, skemmti mér vel í gær. Stöð 2 gat ekki gert betur en að sýna Grease á laugardagskvöldi.
föstudagur, apríl 23, 2004 Hey hó...
Jæja, loksins komin heim eftir mjög ruglingslegan dag. Vaknaði klukkan hálf fjögur í dag, fékk panic-kast þegar ég upprifjaði gærkvöldið. Ég mundi bara að Svanhvít ætlaði að koma og gista hjá mér, en svo hafði ég týnt henni. Ég leit á símann minn þá hafði ég fengið sms frá Súsönnu sem í stóð "Komdu á msn, ég þarf að segja þér svolítið hræðilegt". Ég hélt að það myndi líða yfir mig, ég var svo hrædd um að e-ð hefði gerst fyrir Svanhvíti. En þar sem ég varð að fara beinustu leið í vinnuna, náði ég ekki að fara á msn. Ég reyndi að hringja og hringja í Súsönnu en það var alltaf á tali, ég var að verða vitstola. Svo loksins næ ég í Súsönnu og spyr hana hvað hafi gerst, þá segir hún "æji það var nú ekkert svo merkilegt, Bragi stal bók úr Pennanum". Svo seinna meir hringdi Svanhvít í mig og útskýrði fyrir mér hvað hefði gerst, þar sem ég man voða lítið af kvöldinu sökum ofölvunar. En núna ætla ég að byrja að segja frá gærkvöldinu. Ég hitti my peepz á L.A. Café, þar var voða gaman. Þó að tónlistin hafi verið í verri kantinum, en ég og Súsanna létum það ekkert á okkur fá og dönsuðum eins og hirðfífl. Næst fórum við á Celtic Cross þar sem Begga Bytta var heldur hress, öll út í bjór og sæt. Hún sagði okkur e-ð slúður, hún kenndi mér líka hvernig á að höstla bjór af útlendingum. Svo næst stungu allir af heim og ég og Svanhvít enduðum bara 2 hressar og kátar. Einhvern veginn náði Svanhvít að draga mig inn á Ópus, sem var heldur fyndið. Við meikuðum samt ekki staðinn of lengi og ákváðum þá að fara eitthvert annað. Svanhvít stakk upp á Glaumbar, ég samþykkti bara, enda vissi ég ekkert hvernig staður þettar var. Við fórum inn og keyptum okkur enn einn bjórinn, þegar við erum búnar að vera þar í stutta stund, rekst ég þá ekki á Ísak. Sem var nú bara orðin heldur myndarlegur drengurinn, í flottum jakkafötum og alles. Við tókum einhvern MCHammer flipp dans þarna inni, dönsuðum alveg heillengi saman, maður varð að gera e-ð gott úr þessu, annars hefði ég getað setið og ranghvolft augunum og kvartað yfir því hvað tónlistin væri lélég allt kvöldið. Svo næsta sem ég man er að ég og Svanhvít erum á leiðinni heim og einhvern veginn týni ég henni. Á leiðinni heim var einhver öfuguggi búinn að elta mig heillengi, það enda með að ég sný mér að honum og spyr hann hvort að hann sé að elta mig. Hann spyr hvort að hann megi ekki koma með mér heim, ég labbaði bara áfram. Svo þegar ég er næstum því komin heim kemur einhver annar maður, sennilega í kringum fertugt, og spyr mig að því sama. Ég hunsaði hann bara. Djöfull var þetta ógeðslegt, ætli þeir haldi ekki bara að ég sé einhver Latoyah...hah! Skemmtilegt blogg þetta Nadia...já ég veit!
miðvikudagur, apríl 21, 2004 Draumórar...
Klukkan er að verða 09:20, ég vaknaði fyrir 20 mínútum síðan. Skil ekki alveg afhverju, fór nú ekkert rosalega snemma að sofa. En mér leið alla vega eins og ég þyrfti að rífa mig á lappir því ég hélt að klukkan væri svo seint. En greinilega ekki. Mig reyndar dreymdi alveg rosalega furðulegan draum rétt áður en ég vaknaði. Hann var kannski ekki furðulegur bara fyndinn. Mig dreymdi að ég væri að horfa á Ítalíu vera að keppa við Frakkland í fótbolta (sem er reyndar furðulegt þar sem ég fylgist aldrei með fótbolta), og allt varð brjálað í draumnum. Leikurinn stóð alltaf í stað út af því að það voru allir að lenda í slagsmálum. Að lokum vann Ítalía, en ég, Heba og Elva stóðum í því eftir leikinn að selja leikmönnunum smokka. Það gerðist ekki út á einhverjum fótboltavelli, heldur í einhverju pínulitlu skítugu eldhúsi. Þeir voru e-ð tregir við að borga, en þeir sem borguðu, borguðu með íslenskum pening. Er ekki alveg að skilja þennan draum, en mér fannst hann þó nokkuð fyndinn samt sem áður. Rosalega er gott þegar maður þroskast. Þroskast upp úr einhverjum vissum klæðaburði eða kannski tónlistarsmekk. Þroskast upp úr að gera sig að fífli þegar maður var í grunnskóla. Ójá, ég er að tala um þegar ég og Heiða tókum þátt í Samfés í 9. bekk. Var reyndar að horfa aðeins á þetta í gær, ég gat ekki að því gert en að flissa þó nokkuð oft og líta undan. Flest öll atriðin voru einhver "hardcore" rappatriði það sem textarnir voru "If money would have rule the world" sem var frumsamin texti eftir Conspiracy Crew úr Garðabænum. Svo var það nátturlega "Curiosity" með mér og Heiðu, þar sem textinn var bara hallærislegur og fjallaði um greddu. "Don´t wait to long, I´ll be waiting here for you baby, baby". Svo kom atriði frá Tónabæ þar sem einhverjar stelpur tóku lagið "Fuck somebody else" með Foxy Brown. Þar var textinn e-ð á við þetta "mad pussy steamy I´m a geany, you make my pussy tight all night, niggah yo be lickin my ass all creamy". Og ég er að tala um að þetta eru 14 ára krakkar að syngja e-ð svona rugl. Svo er fólk að hneykslast á því í dag hvað 14 ára stelpur séu e-ð glennulegar. Ég er bara ekki frá því að við höfum bara ekki verið neitt skárri. Svo nátturlega fyrir utan þessi rappatriði komu einhverjar hundleiðinlegar ballöður, eins og t.d. "I am woman in love" og einhver ýkt pirrandi Barbra Streisand gella að syngja þetta lag. Ég man að ég og Heiða þoldum hana ekki, fyrsta lagi var að því að hún söng svo vel og í öðru lagi þá gekk hún út um allt íþróttaheimilið raulandi lagið sitt sem var bara hundleiðinlegt. Svo var nátturlega bara fyndið þegar Oddur og co. tóku "Rape me" með Nirvana. Voru þeir þá með 3 dansara í atriðinu hjá sér, sem gerðu allt "brjálað" í salnum. En það er gaman af þessu. Jæja ég er farin Nadia
Ég er ekki svo viss um að það sé e-ð satt í þessu..
þriðjudagur, apríl 20, 2004 Karlmenn verða líka fyrir andlegu ofbeldi af eiginkonum/kærustum sínum. Ef ekki þá bara meira en konur.
Kjaftagangur...
Það er einhver búinn að segja einhverjum frá einhverju sem er augljóslega ýkt á alla vegu. Ég bið þennan einhvern að gefa sig fram og leiðrétta þetta eitthvað sem var sagt um mig. Og ef þú einhver ert að lesa þetta og veist um hvað ég er að tala um, þá er ég ekki reið. Vil bara fá að leiðrétta þetta eitthvað sem var sagt...eða eitthvað.
mánudagur, apríl 19, 2004 Bloggstríð...
Vill bara láta vita að þetta óbeina rifrildi milli mín og Odds var bara grín. Okkur fannst þetta sniðug hugmynd, en ég er farin að halda að það var það ekki þegar fólk er byrjað kalla mig píku, fyrir að hafa sagt að Oddur væri með rautt hár eða e-ð. Ætlaði ekki að særa neinn með þessu "saklausa" gríni. Peace...
Hár...
Djöfull fer fólk í taugarnar á mér sem spáir bara í útlitinu á sér. Ég kynntist einni svoleiðis manneskju um helgina. Já þessi manneskja talaði ekki um annað en hárið á sér allt kvöldið, hvað það væri erfitt að vera með svona mikið hár. Og þar sem þessi manneskja var talandi um hárið á sér fylgdu alls konar upptalningar á hvernig sjampó hún notaði! Ráðlagði mér meira að segja að nota e-ð Aveda Balsam eða e-ð kjaftæði því endarnir á hárinu á mér væru svo þurrir. Ok, ég er kannski með þurra enda en ég er alla vega ekki með rautt hár!
The O.C.
Búhú pabbi Lukes er hommi...djöfulsins rugl er þetta. Ef þeir myndu kannski velja fólk í þessa þætti eftir leikhæfileikum en ekki útliti þá myndu þeir kannsi vera e-ð skárri. Annars er söguþráðurinn klisjulegur og fyrirsjáanlegur eins og í flestum sápuóperum.
Melissa Panarello...
Mamma var að lesa danska tímaritið ALT og benti mér á eina grein sem var í blaðinu. Hún fjallaði um 18 ára unga stúlku frá Ítalíu sem gaf út bók um kynlífið sitt. Þessi bók hefur verið mjög umdeild vegna þess að bókin segir frá kynlífsreynslu hennar frá 15-16 ára aldurs, þar sem hún stundar sadómasókists kynlíf og kynlíf með eldri mönnum og fólki af sama kyni. Mig langar til þess að glögga í þessa bók, en ég hef ekki heyrt um að hún hafi komið hingað til Íslands. Ég fletti upp nafni stelpunnar á google, og fann umfjöllun og viðtal við hana á þessari síðu, Mjög svo áhugavert.
Heysan Hupsan alle huppa!
Já helgin var viðburðarík hjá Dísinni. Það er að segja ef að afgreiða bensín og steikja pylsur telst með... Viðbjóðslegt, ég get ekki borðar pylsur lengur. Þetta er svo ógeðslegt þegar maður er að sjá þetta steikjast, beikonvafin ostapylsa. Þetta er algjör vibbi, mér finnst pylsur meira að segja ógeðslegri núna heldur en þegar ég heyrði hvað væri í pylsunum sjálfum. Svo lykta þær ógeðslega, svona sveitt fitubræla. Oj bara! Annars er voða lítið í fréttum núna, kíkti á Weezer tónleikana á laugardaginn. Kom reyndar dálítið seint, missti þess vegna af Coral, sem ég hefði viljað að sjá. En ég sá e-ð smá af Jan Mayen og allt heila klabbið með Lokbrá. Gat reyndar voða lítð einbeitt mér að af hljómsveitnni þar sem einhver útúr kólaður andskoti var sparkandi út í loftið á milljón, og var ég hrædd um að ég myndi verða fyrir högginu. Já ég fékk þær fréttir í morgun frá móðir minni að Led Zeppelin væri að fara að halda aðra tónleika hér á Íslandi. Þar sem ég fékk þessar fréttir klukkan 7 í morgun og var á leiðinni í vinnuna mjög óhress, vaknaði ég til lífsins og og hjartað í mér byrjað að hamast á fullu. En sló síðan nokkur þung högg þar sem mamma ruglaðist og sagði að hún hefði meint Deep Purple ekki Led Zeppelin. Svekkjandi... Jæja já...ég skrifa seinna... Nadia
|