Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, apríl 19, 2003 Eru þið sammál þessu...ég er alla vega mjög ósátt!!
Nadine Cooper Lewis: Thu ert fyrrverandi trailer trash sem giftist upp fyrir thig og ert stanslaust ad reyna ad thoknast kallinum thinum, sem vill samt bara skilja vid thig. Thu ert ekki allt of gafud og reynir ad baeta upp fyrir gafurnar med ymsum radum, en yfirleitt til einskis. Hvada Leidarljos karakter ertu? brought to you by Quizilla
Útundan
Ég sit hérna og sýg upp í nefið og horfi á tárin mín falla á lyklaborðið, mér líður sem að ég sé ein í heiminum...ein og yfirgefin af vinum mínum sem eru í þessu að keyra uppi í sumarbústaðinn hans Óla :( Hvar er hamingjan? (Haldið þið ekki að ég geti verið góður rithöfundur, ég er alveg viss um að ég hef mikla rithæfileika ;)) Í gær fór ég á L.A. café á páskadjamm eins og það var kallað með Selmu, Einari frænda hennar, Jón Bjarka og nokkrum öðrum Steinum eða Steinþórum ég náði ekki alveg hvað þeir heita allir. Það var ágætisstemmning þar á bæ en lokaði í kringum 4. Við fórum öll niður á Hlöllabáta, og sátum þar fyrir utan í dágóðastund, skyndilega fékk þörf fyrir að fá mér annan bjór þar sem það var allt næstum því runnið af mér eftir að hafa skokkað niður Laugaveginn. Ég var ekki með nein skilríki og vissi að ég kæmist ekki nein staðar inn með þetta barnslega andlit mitt. Ég ákvað samt að reyna og taka gamla trikkið mitt...þykjast vera útlensk! Works everytime! Ég gekk að Dubliners og sagði við dyravörðinn: " Excuse me sir, but can I go inside for just 5 minutes to look for my friend, I´m not sure if she´s inside I lost her about an hour ago and I´ve been looking for her everywhere" þá svaraði dyravörðurinn: "Do you have an ID?" ég sagði: "No she has my jacket and all my credit-cards are in my pocket" þá svaraði dyravörðurinn: "OK, you can go inside but don´t be long because I´ll go inside after 5 minutes and check on you" ég brosti og svaraði "Thank you, I wont be long" og hljóp síðan inn. Það var frekar lítið að gera og ekkert nema útlendingar og skrítnir Íslendingar þarna inni, ég gekk að barnum og bað um bjór og passaði mig að tala einungis ensku, barþjónninn spurði hvaðan ég væri og ég sagði Englandi þá gaf hann mér bara afslátt á bjórnum. Ég labbaði inn á klósett, setti bjórinn inn á mig og gekk rösklega út, klappaði dyraverðinum á öxlina og sagði "Thanks mate!" og hann brosti blíðlega og sagði: "No problem". Þarna sjáið þið, það getur borgað sig að líta út eins og útlendingur ;) eða bara að tala með góðum hreim. Stuttu eftir, ákváðum við öll að ná leigubíl og fara í partý einhversstaðar í Grafarvogi, en skyndilega fékk ég þorf fyrir að fá mér sígarettu, en ég átti engar þannig ákvað ég að reyna "útlendingatrikkiðmitt" aftur á tveimur saklausum strákum sem gengu á undan okkur, ég spurði þá en þeir sögðust ekki reykja og héldu fyrirlestur á bjagaðri ensku um hvað reykingar væru óhollar, og hlógu því þeir héldu að ég skildi ekki brandarann þeirra...ég var við það að fara segja e-ð við þá á ensku þegar Einar frændi hennar Selmu kallar: "Þórdís komdu! Við erum að fara!!" ég hló bara og sagði: "Bíddu aðeins, ég er í miðjum samræðum hérna". Þeir litu á hvorn annan og hlógu skömmustulega, á þeirri stundu leit ég á annan þeirra sem ég hafði svo sem ekki mikið horft á, og var við það að fá áfall...ég sagði við hann: "Hefur einhver sagt þér einhvern tímann að þú ert ótrulega líkur...." hann ranghvolfdi augunum og greip fram í: "Chris Martin, já ég veit ég heyri þetta daglega". Rétt í þessu gekk stelpa upp að mér og hvíslaði að mér:"Er þetta Chris Martin?" ég sagði:"Já", hún spurði:"Ertu til í að kynna mig fyrir honum?" ég svaraði ég myndi gera það ef hún gæti lánað mér sígarettu hún var fljót að taka upp sígarettu pakkann og rétti mér eina rettu og sleit ekki augun af "Chris Martin". Ég gekk með henni að stráknum sem var gæða sér á Kebab og sagði: "Chris, this is my friend Agnes, Agnes this is Chris" strákurinn kinkaði kolli og sagði hæ en var kannski ekki samræðuhæfur þar sem að hann var með fullan munn af gumsli...stelpan var gjörsamlega dáleidd og byrjaði e-ð að spjalla við hann á ensku þangað til að hann var búinn að kyngja matnum sínum og sagði: "Ég er íslenskur" stelpan varð fúl og strunsaði í burtu. Svona er djammið hjá mér krakkar mínir, ótrúlega skemmtilegt, reyndar ættu það að vera krakkarnir að gráta núna ekki ég...þau vita ekki af hverju þau eru að missa af ;) Þórdís Nadia
föstudagur, apríl 18, 2003 Halló
Já ég viðurkenni það að ég hef ekkert verið neitt sérstaklega dugleg að blogga í páskafríinu, en ég hef eiginlega bara ekki haft tíma í það, og þegar ég hef haft tíma þá hef ég ekki nennt því. Á mánudaginn komu Lára systir og kærastinn hennar Yann. Þau fengu herbergið mitt lánað meðan þau verða hérna þannig að ég sef inni í tölvuherbergi bókstaflega klesst upp við tölvuskjáinn, en það gerir ekkert til svo lengi sem að þetta skemmtilega fólk verði hérna. Þau gáfu mér Elephant diskinn með White Stripes, og varð ég mjög ánægð með hann, og fannst mér það vel valið þar sem ég hafði ekki beðið um þennan disk, Yann kærastinn hennar Láru valdi hann, hlustar sjálfur á White Stipes og þar sem að hann vissi að ég hlustaði á Led Zeppelin þá gat hann til þess að ég myndi sennilega fíla White Stripes...ekki að það sé lík tónlist en kannski að hann hafi fundið út hvernig tónlistarsmekkurinn minn er. Við 3 skelltum okkur í Bláa Lónið í gær...það var ágætt fyrir utan einhverja blindfulla White Trash Svía sem voru þarna með læti og vesen. En jæja þá skrifa ég meira seinna, hef ekki mikið að segja þessa stundina Þórdís Nadia
|