Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, desember 20, 2003 Teiti, teiti, teiti (party, party, party)
Ég sit hérna heima að hlusta á Selmu og Jón Bjarka rökræða um pólitík. Ég hef ekkert að segja því ég veit ekki jackshit um pólitík, þannig ég læt mér bara nægja að stija og kinka kolli. Oh ég er svo mikill vitleysingur :) Útskriftarveislan hennar Selmu var áðan og heppnaðist hún mjög vel. Selma stóð þarna ótrúlega falleg og fáguð í flotta dressinu sínu og með útskriftarhúfuna. Maturinn var ótrúlega góður en ég gat ekki borðað mikið því ég var orðin dálítið stressuð fyrir skemmtiatriðin sem við ætluðum að verum með í veislunni. Þegar flestir voru búnir að borða ákváðu ég og Súsanna að fara með skemmtiatriði okkar, sem var ljóðaflutningur og væmið tempo undirspil á krakkahljómborðinu hennar Súsönnu. Það heppnaðist vel, og sprakk ég úr hlátri þegar Emil litli bróðir hennar Selmu stökk upp á sviðið í miðjum ljóðalestri og tók nokkrar nótur á hljómborðið sem var á sviðinu. Emil kom líka með uppistand sem var bara helvíti fyndið þar sem krakkinn er bara 4 ára. Jón Levy eldri bróðir hennar Selmu tók einn slagara með Queen og var það mjög fyndið því þar sem hann yfirlýsti áður en hann byrjaði að hann væri samkynhneigður, það mátti heyra saumnál detta. Það vissi enginn hvort að hann væri að djóka eða ekki, en síðan var hann víst að grínast. Seinna meir tóku ég Súsanna og Kristín Ýr gamla Funk Flamez lagið "Curiousity" sem var oft sungið á árum áður. Þetta sýnir bara hvað okkur þykir vænt um Selmu, eða s.s. hversu langt við gengum að gera okkur að fífli bara fyrir hana. Að lokum tóku mamma hennar, Elsa (systir mömmu hennar) og Elva (systir Selmu) "Ljóssins Englar" held ég að það heiti, mjög fallegt þó það hafi tekið ágætan tíma til þess að byrja þar sem Selma (mamma hennar Selmu) spilaði á hljómborð, mjög svo fallega...í öll 5 skiptin :) Þetta var æðisleg veisla og kveðjupartý og góð minning sem við getum varðveitt þar til Selma litla kemur heim. Já ég vil bara þakka þeim sem hafa nennt að lesa bloggið mitt, ég veit að það er búið að vera ótrúlega þunglyndislegt undanfarið en ég hef það á tilfinningunni að það muni lagast. Ég vona að þið hættið ekki að lesa...dankeschun. Nadia
mánudagur, desember 15, 2003 Hvað er í gangi??
Ég sló óvart inn wwwbloger.com og gleymdi að gera punktinn og það kom bara einhver ógeðsleg síða. Mynd af einhverju dauðu barni og er þetta greinilega fólk sem er e-ð á móti fóstureyðingum eða kannski ekki e-ð á móti heldur er það MIKIÐ á móti þessu. Þau eru með lög (ótrúlega væmin amerísk lög sem eru aðalega um börn), myndbönd og margt fleira til að styðja við mál sitt. Þau eru meira að segja mæla með því við konur sem hafa verið nauðgað eða hafa lent í sifjaspelli og orðið óléttar fari ekki í fóstureyðingu. Bara ein spurning: Er þetta fólk fokking þroskaheft?? Díses kræst ég örugglega ekki eftir að sofa í nótt.....:(
GHETTOPARTY
Á föstudaginn var fór ég í afmæli til hans Óla Jó eins og ég kýs að kalla hann. Fór þangað mjög edrú og skemmti mér bara konunglega þó að einhver slagsmál höfðu brotist út og löggan hafi komið síðar meir. Þetta var allt saman bara mjög vel heppnuð veisla og ég held að ég hafi ekki skemmt mér svona vel edrú síðan á einhverju skólaballi í 9. bekk. Eftir partíið hjá Óla fóru ég og nokkrir krakkar heim til Önnu Stellu, sem var líka bara mjög fínt þar sem stemmningin var frekar róleg. Ég gisti síðan hjá Selmu um nóttina, vaknaði við það að Selma var að kynna mig fyrir Ottó Bjarka. En það er eins árs strákur sem mamma hennar tekur að sér eina helgi í hverjum mánuði, og ég var svo heppin að gista heima hjá Selmu akkúrat þessa helgi sem hann var staddur þarna. Hann er algjört krútt og það var mjög gaman að leika við hann, takk fyrir það Ottó Bjarki. Lára systir mín var að senda myndir af litlu Eléu, og er hún nú búin að breytast heilmikið. Hún er lítur ekki lengur út fyrir að vera lítill eskimói, núna er hún komin með stór augu og þykkar varir. En hvað ég hlakka til að hitta hana. Ég sit núna heima, nýkomin heim úr vinnunni. Þar sem ég er örugglega með einhverja tölvufíkn, þá er það fyrsta sem ég geri er að kveikja á sjónvarpinu og setjast við tölvuna. Núna eru bara einhver myndbönd á Skjá 1, núna er t.d. nýja lagið með Sign lagið "Thank God for silence" sem er alveg viðbjóðslega leiðinlegt lag, skrítið að þetta skuli vera kallað tónlist og á heitið á laginu ekkert sameiginlegt við skrækina í Ragnari Sólberg. En jæja ég er farin Ciao Nadia
|