Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, september 05, 2003 Bjórkvöld hjá Borgó...
Já ég kíkti aðeins á bjórkvöld hjá Borgó áðan edrú, ég held að ég muni aldrei vera aftur full eins og á seinasta bjórkvöldi hjá FB. Já það var ansi stuð hjá Borghyltingunum (eða hvað sem maður segir), hitti reyndar eina stelpu þarna úr FB sem ég vil helst ekki nefna á nafn hennar vegna. Hún kom og knúsaði mig og samtalið okkar var nokkurn veginn á þessa leið: Hún: "Hæ krúsídúllan mín hvað segirðu??" (tek það fram að hún var mjög drukkin) Ég: "Allt fínt bara en þú?" Hún: "Baða allt gotttt" (með þessari setningu fylgdi smá fruss) Ég: "Já..." Hún: "Ætlaðu ekki á FB ballið?" Ég: "Nei, en þú?" Hún: "Veistu ég baða veit það ekki, ég er búin að kaupa miða og aglt en ég veit samt ekki hvott að ég nenni að faða" Ég: "Já..." Hún: "Heyðu þú reykir er þaggi?" Ég: "Jú" Hún: "Ég reykti sko í 8. og 9. bekk en hætti í 10. bekk, og mamma vissi ekki að ég væri byrjuð attur að reykja..." Ég: "Nú..." Hún: "Hún spuði mig áðan hvott að ég reykti og ég saði baða já" Ég: "Okei..." Hún: "Svo spuði hún mig hvott að ég vildi koma með henni út í sígó, það er svo asnalett að faða með mömmu sinni út í í sígó" Ég: "Já kannski soldið" Hún: "Æji þú ett alltaf svo sæt..." Ég: "He, he..." Hún: "Hvað heitiðu attur?" Ég: "Þórdís" Hún: "Já alveg rétt, heyðu þú varst með mér í stæffæði er þaggi?" Ég: "Jú, jú" Hún: "Náðirðu stæffæðinni?" Ég: "Já" Hún: "Ég líka, ég stefndi sko á að fá 9 eða eikkað en fékk svo..." (heyrði ekki hvað hún sagði) Ég: "Já, en þú náðir alla vega" Hún: "Jáh, heyðu hvað heitðu attur?" Ég: "Þórdís" Hún: "Jáh alveg rétt, manstu hvað ég heiti?" Ég: "Já, *****" Hún: "Það vað rétt, heyðu ætlaðu á busaballið?" Ég: "Nei" Hún: "Já ég er sko búin að kaupa miða og allt ég veit samt ekki hvort að ég nenni" Ég: "Afhverju nennirðu ekki?" Hún: "Æji að því að það er eiginlega allt runnið af mér og sonna" (???) Ég: "Jáh...hehemm" Hún: "Heyðu þú reykir er þaggi?" (og svo sveiflaði hún svona sígarettunni í hringi fyrir framan andlitið á mér) Ég: "Ha, jú" Hún: "Já sko ég reykti í 8. og 9. bekk...." Og svona hélt samtalið áfram þangað til að einhver vinkona hennar togaði hana í burtu (sem betur fór), en ekki að þetta sé leiðinleg stelpa sko, hún bara endurtekur hlutina kannski einum of mikið til þess að halda uppi samræðum þegar hún er full. Það var mikil stuð og stemmning í loftinu þarna og kannski hefur verið einhver spenna, því að á enda bjórkvöldsins sá ég ekki betur en að Dabbi Grensás var með einhvern ybbing þarna og lenti í slagsmálum við einhvern gaur/gaura. Hitti síðan Súsönnu og Selmu og þær var í alveg brjálaðslegu miklu stuði með "Burnburys" regnhlífina sína, sem má nú eiginlega ekki lengur kalla regn-hlíf frekar regn-safnari þar sem hún snéri öfugt eftir hvassviðrið. Ágætt kvöld, held samt að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ég hef séð strák vera að pissa meðan hann var að labba. Takk fyrir og góða nótt. Nadia
mánudagur, september 01, 2003 Insomnia...
Já klukkan er akkúrat núna 00:19 í þessum skrifuðum orðum. Ég er núna búin að liggja upp í rúmi í ca. einn og hálfan tíma að reyna að sofna, en eins og þið hafið kannski giskað á þá gengur það ekkert sérstaklega vel. Já fyrir tveimur og hálfum tíma lagðist ég upp í rúm án þess að tannbursta mig né klæða mig í náttfötin, og ákvað að lesa smá í Íslandsklukkunni ( þegar ég segi smá þá átti ég eftir að lesa 8 kafla ), ég var alveg að sofna eftir að hafa lesið ca. 2 blaðsíður. Ég ákvað að tannbursta mig. Meðan ég var að tannbursta mig settist ég fyrir framan sjónvarpið og stillti á stöð 1. Þá sá ég að það var einhver jamaísk "spennumynd" frekar "cheap" en samt gaman að horfa á, því að tónlistin og myndatakan var eins og úr einhverri ömurlegri klámmynd þótt svo það hafi verið góðir leikarar, svo var líka gaman að heyra hvernig þau töluðu. Eftir hálftíma ákvað ég að leggjast aftur upp í rúm í náttfötum og búin að tannbursta mig og byrja að lesa Íslandsklukkuna. En allt gekk fyrir ekki, ég hafði nánast enga einbeitingu til þess að lesa og var ekki vitund þreytt. Ég stillti á Rás 1 og hlustaði í smástund, fór fram og fékk mér vatn. Ég lagðist aftur upp í rúm og ákvað að byrja að lesa aftur, en allt fór á sama veg. Þannig að ég ákvað bara að fara fram í tölvuna og blogga, og hér er ég. Fór í barnaafmæli áðan hjá Mikael frænda mínum sem er víst orðinn það stór að hann er 5 ára. Ég komst ekki að því fyrir en við sungum afmælissönginn og ég ein söng "hann er 4 ára í dag" meðan hinir sungu "hann er 5 ára í dag", en sem betur fór að enginn heyrði þetta (held ég). En það voru góðar kökur og góðir heitir réttir í þessu afmæli, sem var gaman. Ég er samt sem betur fer komin yfir þann aldur að öll fjölskyldan hellir yfir manni spurningarflóð um hvernig gengi í skólanum, hvað maður sé að læra, hvort maður eigi kærasta og svo framvegis og spurja í hverju einasta jóla-, afmælis-, páskaboði þó svo að þau hafa spurt mann að þessum sömu spurningum í hverju einasta boði (getur verið ansi þreytandi). Ég reyndar vorkenndi einni stelpunni þarna sem heitir Þórdís og er 16 ára nýbyrjuð í framhaldsskóla, hún fékk allar þessar spurningar á sig, en ég var nú samt byrjuð að roðna fyrir hennar hönd því að hvert skipti sem ég heyrði "Þórdís, þú ert nú orðin algjör skvísa, ertu ekkert komin á fast?" fannst mér eins og þau voru að tala við mig, en varð fegin að svo var ekki. Það voru líka mikil læti í þessu barnaafmæli þó svo að meirihlutinn af fólkinu þarna var orðið fullorðið, heyrðist mest í leikfangabyssu frænda míns og öskrin í vini hans þarna. Ég var beðin um að kíkja aðeins á krakkana (sem voru víst bara tveir en voru samt með hávaða á við 100 krakkaskratta), ég kíkti inni í herbergi og spurði strákana með dálítinn skammartón í röddinni minni "Hvað eruð þið að gera?", en áður en ég fékk svar, stukku ekki bara krakkaskrattarnir á mig og héngu á löppunum mínum og sögðu "aaaaah, hahahaha, aah". Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera og mér fannst þetta sjálfri svo asnalegt að ég fór bara að hlæja, en stutt er á milli hláturs og gráturs því að áður en ég vissi af þá beit annar strákurinn mig í lærið og datt síðan kylliflatur á dýnuna á gólfinu. Ég varð eldrauð framan af reiði og sagði "Þetta má ekki!", krakkin lá bara þarna á dýnunni skellihlæjandi og rjóður í kinnum og ullaði á mig. Ég hugsaði með mér "Þetta má ekki" úúú Þórdís þvílíkt ógnandi, engin furða að hann hafi farið að hlæja, stundum vildi ég að ég gæti breytt röddinni minni eins og gaurinn sem Adam Sandler lék í einhverri mynd þar sem hann var sonur djöfulssins (ég man ekki hvað myndin heitir), hah þá myndi ég vilja sjá andlitið á krakkanum! En ekki misskilja mig, ég er engin krakkahatari ég bara kann ekki að skamma þá. Jæja ég ætla að athuga hvort að heitt te hjálpi mér með svefninn... Þangað til góða nótt kæru börn...muhahaha Nadia
sunnudagur, ágúst 31, 2003 ...þá er mínu verki lokið hér á síðunni !
Smá test... æ ó í ú á ð þ
Binni I need your help please...eg meika ekki ad vera endalaust ad skrifa med utlenskum stofum :(
|