Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, júní 19, 2004 Booyah!
Það er föstudagskvöld og ég er ekki að djamma. Já ég get sagt að ég er heldur stolt, og er planið að það verði ekkert djamm fram að 3. júlí, en þá munu Helga Katrín og Katla vinkona hennar halda upp á 20 afmælið sitt. Ég fór á tónleika áðan á Gauknum, Coral, Dikta og Brain Police voru að spila. Mjög góðir tónleikar, reyndar í fyrsta skipti sem ég hef séð Brain Police á tónleikum. Fyndið hvað það er áberandi með þá hljómsveit, hvað það heyrist óvenju mikið í bassanum í sumum lögunum, meira heldur en í gítarnum. Ég var alveg að fíla það. Sá samt eitt mjög skrítið á tónleikunum, ég vissi ekki að grúppíur gætu átt grúppíur. Þau voru þarna nokkur sem voru greinilega svona hardcore-fan Brain Police, og svo kom e-ð annað lið sem var að reyna við grúppíurnar. Frekar fyndið... Jæja klukkan er að ganga fjögur, og ég er að horfa á nágranna. Best að halda áfram... Nadia
föstudagur, júní 18, 2004
þriðjudagur, júní 15, 2004 Baile, baile, baile! Hey!
Ég er ekki frá því að ég sé að fá vott af útlandaveikinni aftur. Kíkti í 12 tóna áðan og keypti mér einn mjög yndislegan disk sem fær mig til þess að dreyma um útlönd. Þetta er diskur með Flamenco tónlist, yndislega fallegt. Ég fæ gæsahúð þegar ég hlusta á þetta. Fæturnir á mér iða líka, ég væri til að kunna e-ð meira en grunnsporin í Flamenco, kannski ég stefni bara á það að fara þarna út og læra allt heila klabbið. Það væri ekki svo vitlaust. Mmm útlönd... Ég hlustaði svo á annan disk sem virtist vera mjög áhugaverður í fyrstu, 3 tónlistarmenn sem blönduðu saman marakóskri og spænskri tónlist saman. Þetta er góð blanda og sum lögin voru mjög falleg, en ég þoli ekki þegar verið er að taka gamla þjóðlagatónlist og blanda einhverjum rafmagnsgítar og hljómborði inn í lögin. Það gerir þau bara e-ð svo cheesy, en þetta var samt stefnan hjá þessum mönnum, taka gömul spænsk og marakósk þjóðlög blanda þeim saman og gera þau nýlegri. Mér fannst það eiginlega bara lélégt, ég vil hafa þetta gamaldags, þá er miklu meiri fílíngur í þessu. Fór með mömmu áðan að ná í einhverja kassa sem við geymdum hjá frænku minni. Fann alveg helling af dóti, gömlum minningum. Gamlar stílabækur úr 7. bekk. Alveg helling af bókum, sem ég væri meira en til í að lesa. Alls konar bækur um islam og fleira. Ég ætla að reyna vera dálítið dugleg að lesa í sumar, ég keypti mér bók í Frakklandi um jólin sem ég er ekki enn farin að lesa. Ég þarf reyndar að hafa dálítið fyrir því að lesa þessa bók hún er á spænsku og mun ég þá halda fast í orðabókina á meðan. En annars er þetta bara smásaga, þannig vonandi verður hún ekki of erfið. Já svo er bara kjúlla-partý í kvöld. I feel like chicken tonight like chicken tonight! Adios Nadia
mánudagur, júní 14, 2004 Yo!
Helgin liðin og vinna á morgun. Þessi helgi var furðulega fljót að líða, og já ég kíkti á djammið. Ég var í rauninni í engu stuði og fékk fólkið í kringum mig að finna vel fyrir því gærkvöldi, ég var frekar leiðinleg. Fyrirgefiði. Reifst meira að segja við einhvern gamlan skólafélaga um það að hann segði aldrei hæ við mig nema þegar hann er drukkinn, það var bara eins og allt færi í taugarnar á mér. En inn á milli var ágætt. Kíkti í heimsókn til pabba áðan, hann er að fara til Túnis á þriðjudaginn. Hann var að reyna að gefa mér einhver gsm-hulstur, ég held að hann hafi gefið mér nokkur svona áður, þannig ég afþakkaði boðið. Hann er svo mikill Kolaporta-kall, var að sýna mér gjafir sem hann ætlaði að gefa fjölskyldunni úti, svo var hann að spurja mig um ráð, í hvaða fötum hann ætti að vera í þegar hann færi út. Æji hann er ágætur karlinn sá. Hann lét mig einnig hafa nokkrar video-spólur. 2001: a space odyssey, Barton Fink, The Big Blue og Droopy (skrípó). Svo lét hann mig líka hafa bókina Mathematics for the Million, sem ég tel að sé mjög hæpið að ég lesi, hún fjallar eiginlega um sögu stærðfræðinnar og er 550 blaðsíður, good luck segi ég nú bara. Voðalega er skrítið að hafa Selmu hérna allt í einu, æji hún er nú meiri dúllan segi ég. Frekar fúlt samt að hún stoppi bara í viku, en ég ætla að reyna að njóta þess eins og ég get. Já ég var vör við kynþáttafordóma áðan, það var samt eiginlega fyndið. Ég var að labba á Laugarveginum áðan, og þar mætti ég konu sem var um fertugt eða kannski eldri. Hún var í rauðri skyrtu sem var ekki hneppt nógu vel að neðan, þannig ég sá í beran magann á henni, appelsínuhúðarmaga. Hún var frekar drukkin sýndist mér, og starði á mig með illu augnarráði þegar ég mætti henni svo segir hún við mig heldur þöglumælt "farðu aftur heim til þín helvítis negrinn þinn". Ég var svolítið lengi að átta mig á að hún var að tala við mig, en trúði varla mínum eigin eyrum. Fannst bara fyndið að svona "red-neck" eins og hún og algjört "white-trash" sem hún leit út fyrir að vera var að koma með e-ð svona komment á mig. Og það sem fyndnast er af öllu, þá er ég ekki einu sinni negri, hef aldrei verið það og mun aldrei verða það. Ég er hálfur arabi. Allt í lagi ég hef mín sambönd, og kann að búa til góðar bombur ef að hún iðrast ekki. Muhahaha. Jæja, ég er farin í háttinn góða nótt... Nadia
|