Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, janúar 07, 2005 Halló Hafnarfjörður!
Var að koma úr töflubreytingu (er ennþá upp í skóla) og hólí móli eruð þið að grínast í mér? Á mánudögum er ég frá 8 til 6, fyrsti tíminn er eðlis- og efnafræði og seinasti tíminn er stærðfræði. Yikes, ég er ekki að sjá þetta fyrir mér. Ég er reyndar í tveimur íslensku áföngum, en komst ekki í spænskuna því áfanginn er ekki kenndur. Djöfulsins onka bonka stundartafla. Annars lítið búið að gerast hjá mér. Aðalega búin að vera að reyna að koma sólarhringnum í lag, en mér hefur ekki tekist það enn. Vakti þess vegna í alla nótt svo að ég myndi ekki sofa yfir mig í töflubreytingu, og tókst það alveg. Er reyndar byrjuð að sjá svolítið illa núna, og heilinn er ekki alveg að virka eins og hann ætti. Ég ætla koma með smá útúrdúr hérna þar sem ég er í svo miklum galsa. Ég var með kveikt á sjónvarpinu í nótt (e-ð til að stytta mér stundir meðan ég var að bíða eftir að komast í töflubreytingu), heyri ég þá ekki uppáhaldslagið hennar Selmu minnar, það hljóðar svo "orðin þrítugur, orðin sturlaður, læt eins og táningur, þegar ég er í kringum þig". Lagið er einhvern veginn svona og er það enginn annar en töffarinn sjálfur Páll Rósinkranz sem syngur það. Allt í góðu með það, en vá hvað mér brá þegar ég sá myndbandið. Maðurinn er örugglega búin að fitna um svona 30-40 kg eftir að hann hætti í Jet Black Joe, og er hann kominn með fimmfalda undirhöku. Svo er hann hættur að vatnsgreiða hárið afturábak, núna er það skipt í píku. Hræðilegt, og það sem gerði myndbandið ennþá verra var þegar hann lagðist í baðkarið (fyllt vatni) í jakkafötunum sínum. Hvað er það? Einhver endurgerð af Britney Spears myndbandi? Greyið kallinn... Annað myndband sem er eilítið hallærislegt er myndbandið við lagið "Norðurljós" með Ragnheiði Gröndal, þar sem hún tekur nett hallærislegan tjáningadans í einhverjum norðurljósakjól. En ég vil ekki segja meira ljótt um það, því mér þykir hálf vænt um litlu elskuna. Jæja ég er farin að gera ekki neitt... Bless og takk fyrir
mánudagur, janúar 03, 2005 Eins og belja á svelli...
Ég held að ég sé verða geðveik að sökum ofþreytu og ofdrykkju. Skrapp aðeins út áðan í hraðbankann og byrjaði allt í einu að hugsa um hvað allt kostaði í Smárabíó, hvað Opal kostaði, hvað Fruitella kostaði, hvað Nóa Kropp kostaði o.s.frv. Er þetta í lagi eða? Svo þegar ég var búin að fara yfir alla sjoppuna þá fór ég að velta fyrir afhverju í ósköpunum ég væri að telja þetta upp, gagnslausar upplýsingar, en ég er víst góð í þeim. Já ég gleymdi, gleðilegt nýtt ár félagar. Vona að þetta ár verði jafn gott eða jafnvel betra heldur en seinasta. Kíkti út á lífið um helgina. Ekki það að það sé e-ð frásögufærandi við það, nema enn og aftur fór ég í einhvern arabafílíng, setti sjalið yfir hausinn á mér ásamt því að hleypa alls konar óhljóðum út úr mér. Fæ alltaf einhvern útlendinga-anda yfir mig þegar ég er full, set mig í e-ð asnalegt hlutverk sem annað hvort arabakonu sem er að leita sér af íslenskum manni eða argentínska skiptinemann sem talar léléga ensku. Einu sinni náði ég að plata 2 menn til þess að giftast mér (sem konu frá Marakkó) svo að ég gæti fengið íslenskan ríkisborgararétt, þeir ætluðu að hitta mig daginn eftir klukkan 11 við Hallgrímskirkju, ég veit, Arabi að gifta sig í Hallgrímskirkju, priceless. Svo eitt sinn þegar ég var argentínski skiptineminn þá náði ég að plata unga stúlku sem var í spænsku í háskólanum að ég væri spænskumælandi argentínubúi að læra ensku í háskólanum hér, við töluðum saman á spænsku by the way. Og var spænskan mín þá ekki það góð að ég gæti talað hana á nokkurn hátt, en hún trúði mér alla vega. Reyndar nokkrum dögum seinna lenti ég í því að þurfa síðan að afgreiða hana í Smárabíó, það var ekkert vandræðalegt, nei nei. En gærkvöldið var skemmtilegt, alla vega meira hressandi heldur en gamlárs. Furðunafnafjölskyldan er að fara aftur til Noregs eftir 5 tíma. Get nú ekki sagt að það sé mikil tilhlökkun í mér, fór að skæla áðan, því ég veit að ég á eftir að sakna Eléu svo mikið og nátturlega Yann og Láru. Ég þoli ekki kveðjustundir, ég á eftir að vera þunglynd örugglega í nokrra daga eftir á. Ég vildi að ég gæti sett inn mynd af Eléu, því þetta er eitt fallegasta og skemmtilegasta barn sem ég veit um. Jæja... Vi ses... Senere... Hej hej... Og tak... Nadia
|