Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
föstudagur, apríl 22, 2005 Jæja
Nú er ég loksins komin til Bahamas. Ég hélt að ég myndi deyja úr óþplinmæði á leiðinni. Lagði af stað í gær klukkan 17:40 frá Leifsstöð, fékk mér nokkra bjóra áður en ég fór, þannig ég var vel í því í vélinni. Horfði á ævisögu Ben Stillers og síðan Bridget Jones's Diary 2, sem var eiginlega nákvæmlega eins og nr. 1. Eftir Bridget lagði ég mig bara, þar sem ég hafði 3 sæti út af fyrir mig. Svaf síðan næstu 3 tímana (sex tíma flug), vaknaði síðan við tilkynningu að við myndum lenda eftir 30 mín. Lenti í Baltimore, þar sem ég þurfti að gista yfir eina nótt. Gisti hjá Íslendingum sem bjóða gistingu fyrir Íslendinga (ok, hefði mátt orða þetta betur). Horfði á einhvern skuggalegan þátt á Discovery Channel áður en ég fór að sofa, um alls konar skrítna sjúkdóma og þannig. Eitt finominómið var fóstur sem var nokkra mánaða gamalt, en rétt áður en það fæddist uppgötvuðu læknirnir annað fóstur inn í fóstrinu, sem sagt tvíbura bróðir/systir inn í fóstrinu. Þegar að barnið fæddist var það skorið upp og fóstrið inn í því fjarlægt, þetta var nú bara fyrir tveimur árum eða svo. Þetta er mjög sjaldgæft að svona gerist, en síðan sýndu þeir myndir frá mörgum árum áður þegar ekkert var hægt að gera við þessu, þá var fólk kannski mjög eðlilegt í vextinum fyrir utan lappir, bak og rass sem stóðu út úr maganum á þeim. Sem sagt fóstrið sem var inn í þeim þegar þau fæddust, fóstrið hafði haldið áfram að vaxa inn í þeim og lappir og annað bara komið út. Ég fékk þvílíkan hroll að horfa á þetta. Fór síðan af stað í morgun frá Baltimore. Seinast þegar ég fór var nánast enginn í vélinni. En núna í dag var vélin troðfull af Ameríkönum, og stór hluti var blindfullur á leiðinni. Venjulega hefði mér ekki fundist neitt að því, en í dag voru þau öll blindfull með þvílík læti, í tvo heila tíma. Ég var að verða geðveik í vélinni, hver einasta setning þeirra byrjaði á "Dude!", enda flest öll á aldur við mig. Síðan var einhver 7 ára leiðinda krakki fyrir aftan mig, sem hver einasti setning hans byrjaði á "Dad?", og síðan spurði hann á 5 mínutna fresti hvenær þau yrðu komin meðan hann sparkaði ákaft í sætið mitt. Þetta voru lengstu 2 tímar ævi minnar, en loksins lenti ég, en við tók endalausar raðir í hitt og þetta en áður en ég vissi af sá á ég Gunna minn standa á móti mér og bjóða mig velkomna með kossi. Ég er að horfa núna á BLT (Black Entertainment), þar sem Gunni þurfti aðeins að skreppa að hjálpa Völla. Djöfull er Black Eyed Peas orðin drulluleiðinleg hljómsveit. Þetta var uppáhaldshljómsveitin mín fyrir ca. 5 árum, þar sem þeir voru súper cool gaurar í flottum fötum og kunnu að dansa. Síðan tóku þeir þessa glyðru inn, sem er nú reyndar mjög flott, en mig grunar að hún hafi meira verið sett inn út á útlitið heldur en e-ð annað þarna inn, því hún syngur voða lítið í þeim lögum sem þau hafa verið að gera. En nýjasta lagið er svo sem ágætt, en mér finnst þeir orðnir heldur commercial núna, þeir voru cool eins og þeir voru. Jæja best að fara að gera ekki neitt...aahhh... Nadia
sunnudagur, apríl 17, 2005 Ja hérna...
Voðalega er ég byrjuð að blogga mikið. Um ekki neitt samt. Hmm já, skellti mér í bíó áðan á Napoleon Dynamite. Hafði ekki hugmynd um hvaða mynd þetta er, fórum bara á einhverja því það var uppselt á myndina sem við ætluðum á. Og vá eruð þið að grínast hvað þetta var fyndin mynd. Ég held að ég hafi bara aldrei hlegið svona mikið út heila mynd. Get eiginlega ekki lýst þessari mynd, maður þarf bara fara á hana sjálfur. Mynd, mynd, mynd... Það er svo mikið af góðum myndum í gangi núna, en því miður þá næ ég ekki að sjá helminginn af þeim áður en ég fer út. Já það er rétt, ég er að fara til Bahamas á fimmtudaginn og ég get ekki beðið. Á bara 2 vaktir eftir og svo er ég flogin. Búin meira að segja að versla smá sumarföt, keypti mér bikiní í Spútnik sem passar naumast á mig, var alveg að rembast við að láta það passa á mig, togaði brjóstahaldarann til og frá svo að júllurnar myndu ekki poppa út, ég held að mér hafi tekist það. Ég keypti alla vega bikiníið, bara spurning hvort að ég verði ekki eins og belja í þessu bikiníi, frekar þröngt þannig brjóstin verða bara fjórföld. Held að enginn fari að kvarta yfir því. Jæja verð að fara, Gunni er að segja mér hasarfréttir frá bólunni sinni. Vi ses... Nadia
Hmm...
Ég er að spá, hvað fær fólk til þess að halda að þið sé yfir öðrum hafin. Eða kannski réttara sagt, hvað fær það til þess að þykjast að vera yfir öðrum hafin? Ég er orðin svo þreytt á svona fólki, ég veit vel að flest allir sem láta þannig eiga við einhvers konar minnimáttarkennd að stríða og vera með yfirlæti er bara einhvers konar vörn hjá þeim. En í Guðanna bænum wake up. Hversu lengi er hægt að láta svona, ætli að fólk taki ekkert eftir þessu, kannski ekki fyrr en það hefur misst ALLA vini sína. Æh ég veit ekki einu sinni afhverju ég er að pirra mig á þessu, var að lesa blogg hjá strák sem ég þekki ekki neitt og þar voru nokkrir einstaklingar að drita yfir hann. Afhverju ekki bara að viðurkenna að maður sé óöruggur með sig, kannski ekki segja það en sýna það bara, þá veit maður alla vega að manneskjan er hreinskilin. Kannski er þetta miklu flóknara heldur en ég er að lýsa þessu. Enda er ég bara byrjuð að tala í belg og biðu núna. Stundum finnst mér ég bara vera svo ótrúlega góð miðað við sumt fólk, meira segja það góð að ég trúi ekki að einhver geti verið svona illa inrættur nema að það sé einhver löggild afsökun fyrir því. Það bara hlýtur að vera, því öll erum við góð innst inni við beinið, alveg í kjarnanum. Bla bla bla, um hvað er ég eiginlega að tala um?? Ég var að koma af næturvakt, þannig að heilinn er ekki alveg að virka. En ég er ekki að segja að ég sé einhver algjör engill, stundum setur maður sig óvart í það hlutverk að vera yfir öðrum hafinn, sérstaklega ef manneskjan er óörugg með sig. Whatever dude ég er hætt þessu rugli... P.S. Ég er að fara til Bahamas á fimmtudaginn, hversu spennandi er það?!?
|