Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, maí 08, 2004 Ja ja ja...
Ég er ekki sátt. Var að heyra íslenska Eurovision lagið rétt í þessu og ég verð bara að segja að ég er ekki nógu ánægð. Jónsi sem er alveg mjög góður söngvari og hefur kröftuga rödd, nær bara ekkert að skila sé í þessu lagi. Lagið byrjar mjög dauft og leiðinlega og maður heyrir ekkert hvort að hann sé góður söngvari eða ekki. Svo aðeins í endann fer lagið á flug, en það endar nánast bara í einhverjum öskrum. Þetta lag minnir mig rosalega mikið á svona týpískt lag sem hefði farið í Eurovision árið 1987. En þar sem ég er svo neikvæð á þetta getur verið að þetta eigi eftir að ná langt. Annars var ég að koma úr vinnunni, þar var aldeilis hressleiki á bæ. Var að vinna með strák sem heitir Hjörtur og hann er með eindæmum einn hressasti strákur sem ég hef kynnst. Hann er alltaf í góðu skapi, ótrúlega opin um allt. Mjög skemmtilegur strákur. En hann á það líka til með að fá mig roðna auðveldlega, sem er heldur pirrandi. Margir vinir hans kíktu í heimsókn, og var hann ekkert ófeiminn við að tjá sig e-ð um mig, eða þá spyr vini sína hvernig þeim lítist á mig. Sem er nátturlega bara grín, en stundum er ég bara svo illa upplögð að það er alveg sama hvað fólk segir við mig þá roðna ég alveg niður í tær. Þetta er svo óþolandi, ég er að verða tvítug og er ennþá roðnandi. Hvenær hættir þetta? Já eins og Súsanna var búin að segja, þá eru ég og hún að fara þema djamm. Ansi skemmtilegt, Vegamótahóru djamm. Einhvern veginn hef ég samt á tilfinningunni að við eigum ekkert eftir að fíla okkur nógu mikið inn í hlutverkið. Ég er ekki svo viss um að fólk myndi fatta þennan húmor, en við ætlum samt að láta reyna á það. Já svo er match-making í gangi þessa dagana og er ég heldur spennt fyrir því. Annars er ég voðalega lélég í að koma fólki saman, hef reynt það með Binna, en það hefur ekki tekist nógu vel. Sorry Binni. Jæja ég er farin... Nadia
fimmtudagur, maí 06, 2004 Ljóðakvöld...
Í kvöld er stefnt á rólegheit og ljóðagerð. Ég og Súsanna ætlum að hittast, semja ljóð og reykja. Ég vona að það verði gaman. Ég sé ekki tilganginn í því að eiga fataskáp. Fötin mín eru alltaf annað hvort á gólfinu eða í óhreinatauinu. Svo ef ég á til með að kíkja e-ð í fataskápinn, þá finn ég ekki neitt. Ég held að ég þurfi að skipuleggja mig betur. Hvað er meira í fréttum? Já ég kíkti aðeins á mótmælin áðan niður á Austurvöllum, það var varla hægt að standa þarna, það var einum of hvasst. Hlýddi samt á nokkur lög með Igore, sem var svo sem ágætt. Já ef þetta er ekki bara leiðinlegasta færsla sem ég hef skrifað þá...þá, eitthvað.... Bæ Nadia
þriðjudagur, maí 04, 2004 Ég er hræsnari...
Ég já ég Þórdís Nadia Óskarsdóttir er hræsnari. Ég var að borða pylsu núna rétt í þessu. Ég sem er búin að vera predika og fussa og sveia yfir fólki hvað mér finnst pylsur ógeðslegar, var að borða pylsu! Ég kenni samt aðalega pylsunni um, hún lá þarna sveitt og einmana inn í ísskáp og beið eftir að ég myndi borða hana. Bara að maginn á mér myndi nú einu sinni segja nei við mat, þá væri ég í góðum málum. Annars borða ég svo skringilega þessa dagana, það er aldrei nein regla á mataræðinu mínu. Ég er t.d. búin að borða heldur lítið þessar undanfarnar vikur og er búin að vera hoppa upp og niður úr 3 kg. Svo allt í einu borða ég og borða. Ekkert smá óþolandi. Nenni samt ekki að standa í einhverju megrunarrugli, ég veit bara að ég þarf að fara að hreyfa mig meira heldur en að pikka á lyklaborðið og lyfta annarri rasskinninni til þess að freta. Já ég er ógeðsleg, þurfið ekki að segja mér það. Ég er hætt að koma með yfirlýsingar á bloggið, ég vil ekki þurfa að horfast í augu við það aftur að játa mig seka eins og með pylsu-málið... Nadia
mánudagur, maí 03, 2004 Ég get ekki treyst minni eigin dómgreind eða samvisku, þess vegna ætla ég að spurja ykkur hvað ég á að gera. Á ég að vinna á Select í sumar, þar sem mér finnst ekki svo skemmtileg vinna og leiðinlegur vinnutími (en samt vel launuð, og ég þarf peninginn til þess að borga yfirdrátt og fleira)? Eða á ég að sækja um vinnu á leikskóla þar sem er mjög líklega gaman að vinna (en ótrúlega illa borgað)?
Svör óskast í komments... Takk Nadia
|