Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, júní 26, 2004 Sælt veri fólkið...
Voðalega er ég ósátt við að það kommentar engin hjá mér. Kommentið gott fólk, kommentið! Ég er nú meiri letihaugurinn, var búin í vinnunni klukkan 3 í gær. Tók strætó heim þar sem ég var rennandi blaut eftir rigningardaginn. Ég kem heim með það í huga að sofna ekki, ég settist upp í sófa og horfði á barnatímann, og fyrsta sem ég geri er að sofna. Þetta er alveg óþolandi, svo vaknaði ég ekki fyrr en 3 og hálfum tíma seinna. Um daginn þá svaf ég frá hálf sjö til fimm um morguninn. Gaman að eyða tímanum sínum í að dreyma, í bókstaflegri merkingu. Ég kíkti í partý í gær með Magga. Nokkrir vinir hans voru að halda partý í íbúðinni þeirra á Meistaravöllum. Þetta er eitt skemmtilegasta partý sem ég hef nokkurn tíman komið í, þegar ég labbaði inn tók á móti mér strákur sem heitir Birkir. Og líktis hann einna helst einhverri rokkstjörnu, hann var með gítar í einni hendi og bjór í annarri. Ég hafði nefnilega séð hann kvöldið áður, þá var hann með krullað hár og líktist helst rappara, sem hann er, en hann hafði beðið kvenkyns herbergisfélaga sína um að slétta á sér hárið, ég giska að það sé ástæðan fyrir því að hann líktist rokkstjörnu. Svo býður hann mig velkomna, fer út á gólf í stofunni og heldur áfram að jamma. Það var staðsett svona hljómborðs-orgel á stofu gólfinu og var hann með gítarinn sinn meðan nokkrir aðrir spiluðu á orgelið. Þetta var ótrúlega flott, svona einhver funky fílíngur í gangi þarna. Við tókum síðan öll leigubíl niður í bæ, fórum inn á Prikið. Ég hef oft talað um áður að mér finnist Prikið ógeðslegur staður. En í gær var eiginlega fínt, því DJ-inn spilaði alls konar tónlist, ekki e-ð 50 Cent ógeð. Ég dansaði eins og ég ætti lífið að leysa. Það er svo langt síðan ég hef dansað, og fann ég var orðin dálítið ryðguð í hreyfingum. En ég skemmti mér samt sem áður. Ok nú er þetta orðið furðulegt. Ég var að labba inn á Da Boomkikker í gærnótt (einungis til þess að kaupa sígarettur). Þá heyri ég einhvern gaur segja "nauh strákar, er þetta ekki Birgitta Haukdal?!". Ok þessi gaur var sennilega að grínast því ég var með hvíta húfu sem líkist dálítið húfunni hennar Birgittu. En svo labba ég inn á Boomkikker, og er að bíða eftir afgreiðslu, þá nátturlega eins og vanalega þá byrjar einhver gaur að reyna við mig (ég veit að það er erfitt að standast mig), og ég tek ekkert neitt rosalega vel undir það, bara svara honum já og nei, svo þegar ég ætla bara að labba í burtu kallar hann á mig "Birgitta, Birgitta bíddu!". Ég lít við og segi "ég heiti ekki Birgitta", og hann svarar mér "hehe þú getur ekki platað mig". Það er búið að líkja mér nokkrum sinnum við svona Celebrities, en ég get ekki sagt að ég sé lík einhverjum þeirra. Hérna kemur svo listinn: André 3000 (Outkast) Alicia Keys Fifi e-ð Norah Jones Birgitta Haukdal Gaman þetta... En já hvað segið þið, kosningar í dag? Ég var ekkert að átta mig á því þegar ég vaknaði. Ætli ég rölti ekki á eftir og kýs Óla grís. Hohohohoho... Nadia
föstudagur, júní 25, 2004 Var að finna Rummikub spilið mitt, ef einhver man út á hvað þetta spil gengur, þá væri ég meira en til í fá að vita það...
þriðjudagur, júní 22, 2004 Aloha...
Sólin er að gera góða hluti þessa dagana. Það var algjör steik í gær, 20 stiga hiti, og var ég einmitt svo heppin að vera búin að dúða mig upp í hlýjustu fötin sem ég átti. Var hvorki með stuttbuxur né bol í vinnunni heldur klæddist ég dökkum og hlýjum fötum, gleymdi síðan nestispening og gat þess vegna ekki fengið mér í ís í kaffinu eins og hinir vinnufélagarnir mínir. En fyrir utan það þá var þetta yndislegur vinnudagur og dagurinn í dag var ekkert síðri þó það hafi ekki verið eins heitt. Það er svo gaman þegar það er sól á Íslandi, allt verður svo bjart, fólk verður svo glatt og já bara gaman. Það getur verið svo ótrúlega leiðinlegt þegar það er vont veður, mér finnst líka miðbærinn njóta sín betur í góðu veðri og sólskini. Já annars hef ég voða lítið að segja man ekki eftir neinu sérstöku sem hefur gerst þessa undanförnu daga. Jæja þetta var leiðinleg og óvenju jákvæð færlsa... Takk fyrir Nadia
|